Viðskipti innlent

Yfir­maður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaup­auka

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Róbert Wessman er stofnandi Alvotech og stærsti hluthafinn í gegnum fjárfestingafélagið Aztiq.
Róbert Wessman er stofnandi Alvotech og stærsti hluthafinn í gegnum fjárfestingafélagið Aztiq. Vísir/Vilhelm

Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Alvotech fékk kaupauka að andvirði rúmlega þrjú hundruð milljóna króna á dögunum.

Þetta kemur fram í Kauphallartilkynningu Alvotech sem Viðskiptablaðið vakti athygli á.

Framkvæmdastjórinn heitir Joseph McClellan. Í tilkynningunni kemur fram að McClellan hafi fengið úthlutað rúmlega 154 þúsund hlutum í Alvotech þann 15. mars.

McClellan fær hlutina frá Alvotech á grundvelli samnings við fyrirtækið. Hann mun ekki greiða neitt fyrir hlutina. Virði hlutanna í lok dags 15. mars er um 323 milljónir króna.

McClellan hefur starfað hjá Alvotech í fimm ár eða frá árinu 2019. Fram kemur á Linkedin-síðu McClellan að titill hans hjá Alvotech sé „Chief Scientific Officer“, einhvers kona framkvæmdastjóri þróunar og vísinda. Hann hafi yfirumsjón með því að koma vörum á markað. Þá hafi hann yfirsýn yfir rannsókn og þróun á starfstöðvum Alvotech í Reykjavík, Julich, Hanover og Zurich.

Hann starfaði áður hjá lyfjarisanum Pfizer. Þar var hann í rúm sautján ár og síðustu árin sem varaforseti fyrirtækisins. 

McClellan er með dokorsgráðu í efnafræði frá University of Florida.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×