Erlent

Segir á­rásar­mennina hafa ætlað til Belarús

Samúel Karl Ólason skrifar
Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Belarús.
Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Belarús. EPA/PAVEL BEDNYAKOV

Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Belarús, segir mennina sem gerðu árásina í tónleikahúsinu í Crocus, úthverfi Moskvu um helgina, hafa fyrst reynt að flýja til Belarús. Öryggisgæsla þar hafi verið svo mikil að þeir beygðu í átt að landamærum Úkraínu.

Þetta sagði Lúkasjenka við blaðamenn í gærkvöldi en hann sagði forsvarsmenn öryggisstofnana í Rússlandi hafa rætt við kollega sína í Belarús og að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hafi hringt í sig og beðið um aðstoð við að koma í veg fyrir að mennirnir kæmust til Belarús.

Samkvæmt frétt Novaya Gazeta, sagði Lúkasjenka að eftir að þeir hefðu orðið varir við aukna öryggisgæslu hafi árásarmennirnir snúið við og farið í átt að landamærum Úkraínu.

Þessi frásögn virðist fara gegn fullyrðingum Pútíns, annarra ráðamanna í Rússlandi og fréttaflutning í ríkismiðlum Rússlands um að mennirnir hafi ætlað sér að fara til Úkraínu og að Úkraínumenn hafi ætlað sér að mynda „holu“ fyrir þá til að fara í gegnum.

minnsta kosti 143 létu lífið í tónleikahöllinni þegar fjórir menn frá Tadsíkistan hófu skothríð þar um helgina og kveiktu í húsinu. Mennirnir voru handteknir og eru þeir sagðir hafa játað að hafa framið ódæðið. Í heildina hafa ellefu verið handteknir vegna árásarinnar.

Óttast er að fjöldi látinna gæti hækkað töluvert þar sem fregnir hafa borist af því að 95 manns sé enn saknað.

Benda á Úkraínu og Vesturlönd

Íslamska ríkið lýsti fljótt yfir ábyrgð á árásinni og birti myndefni frá henni sem árásarmennirnir tóku upp.

Sjá einnig: Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu

Þrátt fyrir það og að yfirvöld Í Bandaríkjunum hafi varað Rússa við því að þeir hefðu uppgötvað vísbendingar um yfirvofandi árás frá vígamönnum Íslamska ríkisins í Kohrasan (ISKP) hafi hafa ráðamenn í Rússlandi bendlað Úkraínu og Vesturlönd við árásina, án þess þó að geta fært nokkrar sannanir fyrir málflutningi sínum.

Alexander Bortnikov Yfirmaður Leyniþjónustu Rússlands, FSB, staðfesti í gær að viðvörun hefði borist frá Bandaríkjunum, en sakaði Bandaríkjamenn og Breta þó um að hafa komið að árásinni.

Alexander Bortnikov Yfirmaður Leyniþjónustu Rússlands, FSB, staðfesti í gær að viðvörun hefði borist frá Bandaríkjunum, en sakaði Bandaríkjamenn og Breta þó um að hafa komið að árásinni.

Hávær umræða hefur myndast í Rússlandi um það að taka upp dauðarefsingu á nýjan leik og að árásarmennirnir verði teknir af lífi. Dauðarefsingar hafa ekki verið leyfilegar þar í um 28 ár.

Dómarar Hæstaréttar Rússlands tilkynntu í dag að þeir myndu taka málið til skoðunar en eingöngu eftir að formleg beiðni um slíkt bærist frá yfirvöldum, samkvæmt RIA fréttaveitunni sem er í eigu rússneska ríkisins.


Tengdar fréttir

Beinir spjótunum enn að Úkraínu

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir öfgamenn úr röðum íslamista hafa gert árásina á tónleikahöllina í Crocus um helgina en beinir spjótum sínum þó áfram að Úkraínu og Bandaríkjunum. Í ræðu í kvöld gaf hann í skyn að árásarmennirnir hefðu fengið borgað fyrir árásina og frá Úkraínu.

ISIS birtir hryllingsmyndbönd af árásinni

Íslamska ríkið birti í dag ný myndbönd af hryðjuverkaárásinni í útjaðri Moskvuborgar sem átti sér stað á föstudagskvöld. 133 létust en myndböndin staðfesta fyrri yfirlýsingu íslamska ríkisins þar sem ábyrgð á árásinni var lýst yfir. Rússar hafa aftur á móti bendlað Úkraínumenn við árásina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×