Handbolti

Skarp­héðinn Ívar til liðs við Hauka

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Skarphéðinn Ívar mun spila í rauðu næstu árin.
Skarphéðinn Ívar mun spila í rauðu næstu árin. Haukar

Skarphéðinn Ívar Einarsson er genginn í raðir Hauka frá KA. Hann skrifar undir þriggja ár samning á Ásvöllum.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur hinn 18 ára gamli Skarphéðinn Ívar spilað undanfarin þrjú ár með KA á Akureyri. Eftir tímabilið færir hann sig um set og flytur í Hafnafjörðinn.

„Það er mikil tilhlökkun að sjá Skarphéðin klæðast rauðri treyju á næstu leiktíð þar sem hann mun bætast í öflug­an hóp leik­manna,“ segir í tilkynningu Hauka.

Skarphéðinn Ívar leikur í stöðu vinstri skyttu og hefur leikið fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×