Lífið

„Maður er eins og salt­fiskur í marga daga“

Helena Rakel Jóhannesdóttir og Jón Grétar Gissurarson skrifa
Ferðamenn fengu steypibað í briminu.
Ferðamenn fengu steypibað í briminu. RAX

Fylgifiskur þess að ná góðum ljósmyndum af brimi er sá að viðkomandi ljósmyndari verður brimsaltur við iðjuna. 

Þessu hefur ljósmyndarinn Ragnar Axelsson fengið að kenna á í gegnum tíðina þegar hann hefur myndað brim í vonskuveðrum um allt land. Linsurnar fyllast af salti og sjó og munnurinn líka, hárið klístrast, bíllinn þarf að fara í þvott, og í sumum tilvikum verða myndavélarnar fyrir skemmdum.

„Saltbragðið fer ekki.“

Ragnar hefur oft velt því fyrir sér hvernig sé að velkjast um í briminu og í einni ferðinni í Reynisfjöru náði hann myndum af ferðamönnum sem lentu í þeim aðstæðum. 

Ragnar smellti myndum af þeim þar sem þau leituðu skjóls í stuðlaberginu við fjöruna en brimið skall engu að síður á þeim og kaffærði um tíma.

Söguna um ferðir Ragnars í leit að brimi má sjá í nýjasta þættinum af RAX Augnablik, í spilaranum hér að neðan.

Fleiri þætti úr smiðju RAX má sjá á sjónvarpsvef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×