Lífið

„Dísa er fyndnasta manneskja sem ég þekki“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Listaparið Júlí Heiðar og Þórdís Björk eiga von á sínum fyrsat barni saman á næstu vikum.
Listaparið Júlí Heiðar og Þórdís Björk eiga von á sínum fyrsat barni saman á næstu vikum. Elísabet Blöndal.

Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson sendi unnustu sinni, listakonunni Þórdísi Björk Þorfinnsdóttur, hjartnæma afmæliskveðju á Instagram. Hann segir sérhvert ástarlag hans samið um hana og vonist til að ófædd dóttir þeirra líkist móður sinni sem mest.

„Gærdagurinn, 10. apríl, er einn af mínum uppáhalds dögum því þá á þessi fallega, klára og skemmtilega kona afmæli. Hún fyllir mig af innblæstri á hverjum degi og stendur við hliðina á mér í öllum blæbrigðum lífsins. Hún er sérhvert ástarlag og gerir þau skrif afar auðveld.

Þessa dagana gengur hún með litlu stelpuna okkar sem að ég vona að fái alla fallegu kosti mömmu sinnar í fæðingargjöf, þá sérstaklega húmorinn því Dísa er fyndnasta manneskja sem ég þekki! Annars væri bara geggjað ef litla daman væri sem líkust henni.

Til hamingju með daginn elsku ástin mín og takk fyrir að auðga lífið mitt svona mikið,“ skrifar Júlí og deilir fallegum myndum af Dísu sinni.

Júlí og Þórdís eiga von á stúlku á næstu vikum. Fyrir eiga þau hvort sinn soninn frá fyrri samböndum.

Bæði báðu þau hvors annars á sama stað, í samkomuhúsinu á Akureyri sem Þórdís segir vera þeirra eftirlætisstað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×