Viðskipti innlent

Lítil eftir­spurn eftir hlutum Play

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Almennt hlutafjárútboð Play á hlutum að andvirði 500 milljónum króna stóð yfir frá 9. til 11. apríl og bárust áskriftir upp á um 105 milljónir króna.
Almennt hlutafjárútboð Play á hlutum að andvirði 500 milljónum króna stóð yfir frá 9. til 11. apríl og bárust áskriftir upp á um 105 milljónir króna. Vísir/Vilhelm

Áskriftir að fjárhæð 105 milljónum króna bárust í almennu hlutafjárútboði Play. Boðnir voru út hlutir að andvirði hálfs milljarðar og eftirspurnin því um tuttugu prósent. Áður höfðu borist bindandi áskriftarloforð frá núverandi hluthöfum og öðrum fjárfestum upp á 4,5 milljarða.

Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins um hlutafjárútboðið sem stóð yfir 9. til 11. apríl. Play hefur því safnað um 4,6 milljörðum króna frá því tilkynnt var um fyrirhugaða fjármögnunarlotu 8. febrúar.

„Til að tryggja jafnræði hluthafa var ákveðið að efna til almenns hlutafjárútboðs á allt að 111.111.112 hlutum á áskriftargenginu 4,5 kr. á hvern hlut – samanlagt 500 m.kr.“ segir í tilkynningunni. 

Þar segir að alls hafi borist áskriftir að fjárhæð um 105 milljónum króna, eða rétt rúmlega tuttugu prósent af þeim hlutum sem voru boðnir út.

Í tilkynningunni segir að fjárfestum verði tilkynnt um endanlega úthlutun mánudaginn 15. apríl og að fyrirhugaður greiðsludagur sé 23. apríl. 

Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY, sagðist ánægður með niðurstöðu fjármögnunarlotunnar þar sem hún hafi verið talsvert yfir þeirri fjárhæð sem þau ráðgerðu í upphafi að safna. Niðurstaðan sé góð samblanda af þátttöku núverandi hluthafa og nýrra hluthafa sem m.a. samanstandi af stofnanafjárfestum og öflugum fjárfestingafélögum.


Tengdar fréttir

Stærstu hlut­hafar sagðir ætla að taka þátt í út­boði Play og verja sinn hlut

Allt útlit er fyrir að mikill meirihluti helstu fjárfestanna í hluthafahópi Play muni leggja flugfélaginu til samanlagt um helming þeirrar fjárhæðar sem það áformar að tryggja sér í þessum mánuði. Stjórnendur Play hafa klárað markaðsþreifingar við tíu stærstu hluthafa félagsins vegna útboðsins, þar sem ætlunin er að sækja allt að fjóra milljarða, og væntingar eru um að hægt verði að tilkynna um aðkomu þeirra á allra næstu dögum.

Hluthafar vilja drífa hlutafjáraukningu Play af

Stór hluthafi í Play segir æskilegt í ljósi þess að tilkynnt hafi verið um að til standi að auka hlutafé flugfélagsins að það verði gert á næstu dögum og helst ekki síðar en í þessum mánuði. Til skamms tíma ætti fyrirhugað hlutafjárútboð að leiða til þess að gengi bréfa félagsins haldist niðri en forstjóri Play hefur sagt að hlutafjáraukninguna þurfi ekki á næstu mánuðum til að fjármagna reksturinn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×