Viðskipti innlent

Spá því að verð­bólga hjaðni

Jón Þór Stefánsson skrifar
Bankinn telur að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,6 prósent í apríl frá fyrri mánuði.
Bankinn telur að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,6 prósent í apríl frá fyrri mánuði. Vísir/Vilhelm

Ársverðbólga mun hjaðna á ný í apríl og á næstu fjórðungum eftir nokkuð óvænta hækkun síðasta mánaðar, þessu spáir Íslandsbanki í verðbólguspá sinni

„Verðbólga heldur áfram að hjaðna næstu mánuði en mun þó ekki vera við markmið Seðlabankans á spátímanum þó hún verði komin ansi nálægt því árið 2026,“ segir í tilkynningu Íslandsbanka.

Bankinn telur að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,6 prósent í apríl frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir muni ársverðbólga hjaðna nokkuð, og fara úr 6,8 prósentum í 6,1 prósent.

Þessi spá Íslandsbanka rýmar við spá Landsbankans frá því í gær.

Báðir bankarnir minnast sérstaklega á að reiknuð húsaleiga muni hafa mikið að segja um þetta, sem og flugfargjöld.

Íslandsbanki

„Húsnæðisliðurinn vegur þyngst til hækkunar í spá okkar fyrir aprílmánuð. Reiknuð húsaleiga hækkar um 1,3% (0,25% áhrif á VNV). Þessi hækkun kemur m.a. til vegna eftirspurnarþrýstings sem stafar af íbúðarkaupum Grindvíkinga. Að öllum líkindum mun þó draga úr eftirspurnarþrýstingi á ný eftir því sem líður á árið. Við teljum að vaxtaþáttur hækki um 0,5% og íbúðaverð um 0,8% í aprílmælingu VNV,“ segir í tilkynningu Íslandsbanka.

Þar segir að breytt aðferðafræði við útreikning á reiknuðu húsaleigunni muni trúlega koma til með að minnka sveiflur á henni. Þar af leiðandi muni verðbólga að bati Íslandsbanka mælast heldur minni. 

„Nýja aðferðin, sem byggir á gögnum um þróun leiguverðs í stað verðs í fasteignaviðskiptum auk vaxtaþáttar, verður tekin í notkun í júní.“

Íslandsbanki

Í verðbólguspá Íslandsbanka er tekið fram að árviss hækkun flugfargjalda í vetrarlok hafi komið í mars þar sem páskahátíðin var snemma þetta árið. Hækkunin var þó minni en bankinn hafði spáð.

„Þess vegna teljum við að hluti hækkunar flugfargjalda sem tíðkast í kringum páska eigi eftir að koma fram í apríl. Við spáum því að flugfargjöld hækki um 7% í mánuðinum.“

Íslandsbanki

Bent er á að apríl í fyrra hafi verið stór hækkunarmánuður í vísitölu neysluverðs. „Sá mánuður dettur nú út úr 12 mánaða tímabilinu sem verðbólga er reiknuð út frá. Það veldur því að ársverðbólga hjaðnar jafn mikið og raun ber vitni í okkar spá.“

En spá fyrir næstu mánuði er eftirfarandi:

  • Maí - 0,3% hækkun VNV (ársverðbólga 6,0 %)
  • Júní - 0,5% hækkun VNV (ársverðbólga 5,6 %)
  • Júlí - 0,2% hækkun VNV (ársverðbólga 5,8 %)
Íslandsbanki

Íslandsbankinn segir helstu óvissuþætti vera áhrif breyttrar aðferðafræði við útreikning á reiknaðri húsaleigu og verðþróun á íbúðarmarkaði. Það sé vegna þess að enn ríki nokkur óvissa um áhrif íbúðakaupa Grindvíkinga á fasteignaverð.

„Þá á einnig eftir að koma í ljós hvernig sumar verður í ferðaþjónustu þetta árið, en nokkur óvissa ríkir um það.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×