Lífið

Tæknidagur fjöl­skyldunnar í Nes­kaup­stað

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Mjög fjölbreytt og áhugaverð dagskrá verður í gangi í allan dag á Tæknidegi fjölskyldunnar í Neskaupstað.
Mjög fjölbreytt og áhugaverð dagskrá verður í gangi í allan dag á Tæknidegi fjölskyldunnar í Neskaupstað. Aðsend

Það verður mikið um að vera í Neskaupstað í dag því Verkmenntaskóli Austurlands stendur fyrir Tæknidegi fjölskyldunnar þar, sem hægt verður að kynnast nýjustu tækni, vísindum, nýsköpun og þróun á Austurlandi.

Það er Verkmenntaskóli Austurlands sem stendur að Tæknideginum með stuðnings víða að. Dagskráin hófst núna klukkan 12:00 og stendur til 16:00 í dag en hún fer bæði fram inn í skólanum og í íþróttahúsinu. Birgir Jónsson, gæða- og verkefnisstjóri hjá Verkmenntaskóla Austurlands veit allt um tæknidaginn.

„Meginmarkmiðið er að sýna hvað við erum að gera, skólinn og fyrirtæki og stofnanir, bæði hér í nærsamfélaginu og svo líka koma til okkar vísindasmiðja Háskóla Íslands, Háskólinn á Akureyri og fleiri stofnanir, sem koma lengra að. Þannig að, já við hlökkum bara til að taka á móti fólki í allan dag,” segir Birgir.

Þetta er virkilega flott framtak hjá ykkur.

„Já, þetta er bara ótrúlega gott og við njótum styrkja til að láta þetta verða að veruleika.”

Birgir Jónsson, gæða- og verkefnisstjóri hjá Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað, sem er spenntur fyrir degi dagsins eins og aðrir, sem koma að honum á einn eða annan hátt.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Fjölbreytt dagskrá verður í allan dag en gestum verður meðal annars boðið að prófa ýmsar tilraunir með rafmagn, skoða smáhýsi sem er í smíðum við skólann, gera litríkar tilraunir, kynnast frumkvöðlum framtíðarinnar í nýsköpunarkeppninni, prófa bragðlaukana, móta landslag í sandkassa, kynna sér ýmsar iðngreinar og möguleika sem nám í þeim færir og fá „heilsufarsskoðun svo eitthvað sé nefnt.

„Við hlökkum gríðarlega til að fá fólk hingað til okkar, þannig að ég hvet fólk að koma og heimsækja okkur og prófa allt sem hér er hægt að prófa. Þetta er bara gríðarlega spennandi fyrir fólk á öllum aldri,” segir Birgir.

Heimasíða skólans






Fleiri fréttir

Sjá meira


×