Lífið

„Stundum þarf enga bé­vítans heimild“

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Forsetahjónin veittu verðlaun fyrir heimildamynd ársins á Eddunni í gær. Þetta var í síðasta sinn í forsetatíð Guðna sem þau veita verðlaunin. 
Forsetahjónin veittu verðlaun fyrir heimildamynd ársins á Eddunni í gær. Þetta var í síðasta sinn í forsetatíð Guðna sem þau veita verðlaunin.  Skjáskot/Rúv

Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid veittu verðlaun í flokknum Heimildamynd ársins á Edduverðlaunahátíðinni í gærkvöldi. Guðni notaði tækifærið og impraði á mikilvægi þess að geta heimilda og að hafa eitthvað fyrir sér. Eliza sagði hann yfirleitt skemmtilegri en þetta á laugardagskvöldum. 

„Þú ert mjög alvarlegur á svipinn, Guðni,“ sagði Eliza þegar þau stigu á svið.

„Þetta er ekkert grín,“ svaraði Guðni á léttu nótunum og hóf svo ræðu sína um mikilvægi heimilda.

Heimild hefur ólíkar merkingar. Hefurðu heimild? Hefurðu eitthvað fyrir þér?

Þá benti hann á að í heimildamyndum mætti ekki segja ósatt.

„Það má ekki ljúga. Þú verður að hafa eitthvað í höndunum. En svo hins vegar, hefurðu heimild? Þá er einhver búinn að leyfa þér…." Á þessum tímapunkti greip Eliza inn í.

„Ég skil ekki neitt hvað þú ert að segja.“

 Þú ert skemmtilegri heima á laugardagskvöldum, yfirleitt

Guðni virtist taka þessu sem ábendingu um að stytta mál sitt.

„Punkturinn er þessi, stundum þarf enga bévítans heimild til að búa til heimildamynd nema hafa heimildina, semsagt efniviðinn. En stundum þarftu að segja „ég hef enga heimild til að búa til þessa heimildamynd en mér er alveg sama.“ Það þarf hugrekki til að búa til alvöru heimildamynd.“

Hlutu standandi lófaklapp

Því næst las Eliza upp tilnefningarnar og forsetahjónin veittu verðlaunin fyrir heimildamynd ársins, en það var myndin Smoke Sauna and Sisterhood eftir eistnesku kvikmyndagerðarkonuna Önnu Hints sem hlaut Edduna. 

Tilnefningarnar í flokknum heimildamynd ársins.

Eftir verðlaunaafhendinguna notaði Guðni tækifærið og þakkaði fyrir stuðning og hlýju undanfarin ár. Hann sagði það hafa verið einstök forréttindi að fá að fylgjast með íslenskri menningu og mannlífi blómstra. Áhorfendur stóðu þá upp og klöppuðu fyrir Guðna og Elizu, en þetta var í síðasta sinn á hans forsetatíð sem þau veittu Edduverðlaun.


Tengdar fréttir

Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur

Kvikmyndin Á ferð með mömmu hlaut alls níu Eddur þegar á verðlaunafhending á vegum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademían fór fram við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Myndin hlaut meðal annars verðlaun fyrir leikstjórn, handrit, leikara og leikkonu í aðalhlutverki, auk þess að hreppa eftirsótta titilinn kvikmynd ársins.

Guðni segir kjaftasögur einn af löstunum í litlu samfélagi

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ræddi kosti og galla smæðar íslensks samfélags á dögunum í sérstöku erindi þegar Stjórnunarverðlaun Stjórnvísis voru veitt á Grand Hótel. Þar vísaði hann til kjaftagangs sem algengur væri í íslensku samfélagi vegna smæðar þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×