Viðskipti innlent

Hafa tapað milljörðum vegna endur­tekinna lokana

Oddur Ævar Gunnarsson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóra sölu, rekstrar og þjónustu Bláa lónsins.
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóra sölu, rekstrar og þjónustu Bláa lónsins. Vísir/Arnar

Forsvarsmenn Bláa lónsins áætla að beinn kostnaður vegna lokana sökum jarðhræringa sé um fimm milljarðar króna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem rætt var við Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra sölu, rekstrar og þjónustu Bláa lónsins.

Tilefnið er að lóninu var lokað í morgun vegna gasmengunar. Það var opnað aftur klukkan tvö í dag og þegar fréttastofa ræddi við Helgu í kvöldfréttum voru margir gestir í lóninu.

„Þetta er í annað sinn sem við höfum lokað vegna gasmengunar eða spár um gasmengun. Fólkið okkar hefur sýnt gríðarlega þrautseigju í gegnum allar þessar áskoranir. Eins og þetta var í dag þá fóru einhverjir heim þangað til það opnaði og aðrir biðu af sér hér inni en auðvitað er mun öruggara að vera inni en úti eins og menn vita.“

Fimm mánuðir eru síðan Grindavík og svæðið í kring var rýmt. Á þeim tíma hefur Bláa lóninu reglulega verið lokað.

„Við erum búin að vera með lokað samtals í rúma þrjá mánuði síðan hræringarnar hófust. Við auðvitað erum á þessu svæði og við ætlum að lifa með þessum jarðhræringum og þessari stöðu, þannig við höfum verið að sýna sveigjanleika eins og hægt er og meta stöðuna hverju sinni auðvitað með sérfræðingum á hverju sviði,“ segir Helga.

Hún segir forsvarsmenn lónsins reiða sig á gott og þéttriðið net sérfræðinga. Áætlað sé að beinn kostnaður vegna þessara lokana sé um fimm milljarðar.

Hafið þið þegið þessa lokunarstyrki sem hafa verið í boði?

„Við höfum litið á það sem samstarfsverkefni okkar og stjórnvalda að viðhalda þeim stöðugildum og þeim störfum sem hjá okkur eru og okkur hefur auðnast það og við höfum viðhaldið öllum átta hundruð störfunum en þessi kostnaður, jú við höfum fengið hluta af þessum styrkjum en beinn kostnaður nettó er um fimm milljarðar.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×