Íslenski boltinn

Niður­stöðu að vænta í máli Arnars og KA eftir mánuð

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arnar náði fínum árangri fyrir norðan en viðskilnaðurinn hefur dregið dilk á eftir sér.
Arnar náði fínum árangri fyrir norðan en viðskilnaðurinn hefur dregið dilk á eftir sér. Vísir/Hulda Margrét

Aðalmeðferð í máli Arnars Grétarssonar gegn Knattspyrnufélagi Akureyrar fór fram í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Dóms í málinu má vænta eftir mánuð hið síðasta en Arnar krefst milljóna frá félaginu.

Arnar var þjálfari KA-liðsins en yfirgaf liðið seint á leiktíðinni árið 2022. Það ár komst KA í Evrópusæti og var ákvæði í samningi Arnars sem kvað á um að hann fengi greitt ákveðið hlutfall af Evróputekjum félagsins frá UEFA.

Tekjurnar árið eftir voru umtalsverðar þar sem KA komst í þriðju umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar en Arnar stýrði liðinu í fyrstu umferðina, með árangri í Bestu deildinni 2022. Hallgrímur Jónasson stýrði liðinu sumarið eftir 2023 þegar árangurinn í Evrópu náðist.

Arnar stefndi félaginu eftir að sáttafundir skiluðu ekki niðurstöðu. Ágreiningur Arnars og KA snýr að stærð upphæðarinnar sem KA skuldar Arnari vegna árangurs félagsins.

Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, og Arnar gerðu samning hans við KA sín á milli á sínum tíma. Þeir tveir voru einu vitnin sem kölluð voru til í dómssal í gær.

Ekki er ljóst hvenær Hlynur Jónsson, dómari í málinu, kveður upp dóm sinn, en það verður í síðasta lagi eftir fjórar vikur.

Um hvað snýst málið?

Arnar kvaddi KA haustið 2022 til að taka við Val, eftir að hafa stýrt KA í rúm tvö ár. Samkvæmt upplýsingum Vísis var ákvæði í samningi Arnars við KA um að hann fengi ákveðið hlutfall af Evrópugreiðslum frá UEFA, sem félagið fékk svo árið eftir að Arnar fór, vegna árangurs í Sambandsdeild Evrópu.

Heildarupphæðin sem KA fékk hækkaði úr 150.000 evrum (jafnvirði 22 milljóna króna í dag) í 550.000 (82 milljónir króna) við það að liðið, þá undir stjórn Hallgríms Jónassonar sem áður var aðstoðarmaður Arnars, komst í gegnum 1. og 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar síðasta sumar.

Eftir því sem Vísir kemst næst telja KA-menn eðlilegt að Arnar fái greiddan bónus í samræmi við þann árangur að hafa komið liðinu í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar. Arnar hefur hins vegar enn enga greiðslu fengið og krafa hans er að upphæðin sé í samræmi við að KA skuli hafa náð í 3. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar.

Ekki er ljóst um hve háar upphæðir ágreiningurinn snýst en augljóst að um milljónir er að ræða, og jafnvel tugi milljóna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×