Erlent

Ísraelar sagðir búnir að á­kveða að svara fyrir sig

Kjartan Kjartansson skrifar
David Cameron, utanríkisráðherra Bretlands, (t.v.) ræðir við Isaac Herzog, forseta Ísraels, (t.h.) í Jersúsalem í dag.
David Cameron, utanríkisráðherra Bretlands, (t.v.) ræðir við Isaac Herzog, forseta Ísraels, (t.h.) í Jersúsalem í dag. Vísir/EPA

Utanríkisráðherra Bretlands segir ljóst að ísraelsk stjórnvöld séu búin að ákveða að grípa til aðgerða gegn Íran eftir drónaárásina um helgina. Erlendir erindrekar hvetja Ísraela til að sýna hófsemd til þess að kveikja ekki frekara ófriðarbál í heimshlutanum.

'Íranar skutu flugskeytum og sendu dróna í átt að Ísrael um helgina en þeir voru flestir skotnir niður. Enginn lést og aðeins minniháttar tjón hlaust af árásunum sem voru svar stjórnvalda í Teheran við loftárás sem felldi íranskan herforingja og fimm liðsmenn byltingarvarðarins 1. apríl. Íranar kenna Ísraelum um árásina en en þeir hafa ekki gengist við henni.

Bandamenn Ísraela hafa þrýst á ísraelska ráðamenn að bregðast við árásinni um helgina af yfirvegun. Svo virðist sem að Ísraelar hafi ekki verið tilbúnir að fara að þeim ráðum ef marka má orð Davids Cameron, utanríkisráðherra Bretlands, sem hitti ísraelska ráðamenn í dag.

„Það er ljóst að Ísraelar taka ákvörðun um að grípa til aðgerða. Við vonum að þeir geri það á hátt sem stigmagnar ástandið sem minnst,“ sagði Cameron eftir fund sinn með Isaac Herzog, forseta Ísraels.

Í svipaðan streng tók Annalena Baerbock, þýski utanríkisráðherrann, sem er einnig í Ísrael. Hún sagði Þýskaland standa fyllilega við bakið á Ísrael en hvatti til stillingar.

„Allir verða núna að vera hyggnir og ábyrgir. Ég á ekki við að gefast upp. Ég er að tala um skynsamlega stillingu sem er í raun styrkleiki. Vegna þess að Ísrael hefur sýnt styrkleika með varnarsigri sínum um helgina,“ sagði hún.

Ebrahim Raisi, forseti Írans, ávarpar hermenn í Teheran í dag. Hann hét hörðum aðgerðum ef Ísrael gerði jafnvel „smávægilegstu innrás“ til að hefna fyrir árás helgarinnar.AP/Vahid Salemi

Taka sínar eigin ákvarðanir

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hitti bæði Cameron og Baerbock í dag, að sögn AP-fréttastofunnar. Hann sagði þau hafa lagt fram ýmsar tillögur og ráðleggingar.

„Ég kann að meta það en ég vil taka það skýrt fram: við tökum okkar eigin ákvarðanir og Ísraelsríki gerir hvað sem það þarf til þess að verja sig,“ sagði forsætisráðherrann.

Hverjar þær aðgerðir sem Ísraelsmenn grípa til gætu tendrað þá púðurtunnu sem heimshlutinn er þessa stundina. Ebrahim Raisi, forseti Írans, jók spennuna enn frekar í dag þegar hann sagði að árásin um helgina hefði verið „takmörkuð“. Ef Íranar vildu gera stærri árás væri ekkert eftir af Ísrael. 

Varaði Raisi við því að ef Ísraelar gerðu jafnvel smávægilegustu árás á móti yrði henni mætt af mikilli hörku.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×