Atvinnulíf

Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjóna­rúminu

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi, þarf ekki einu sinni tónlist til að komast í dansgírinn en hún segir fólk að austan upp til hópa viljugt til að fara á dansgólfið í partíum. Uppáhaldstundirnar heima fyrir eru þegar allir eru saman í hjónarúminu, lesa og spjalla.  
Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi, þarf ekki einu sinni tónlist til að komast í dansgírinn en hún segir fólk að austan upp til hópa viljugt til að fara á dansgólfið í partíum. Uppáhaldstundirnar heima fyrir eru þegar allir eru saman í hjónarúminu, lesa og spjalla.  

Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála Alcoa á Íslandi, segist þora að fullyrða að partígestir að austan kunni upp til hópa allir að dansa við ákveðinn indverskan popp slagara. 

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Það fer eftir því hvort ég ætli að vinna að heiman eða frá álverinu okkar á Reyðarfirði þann daginn. 

Það gengur rúta beint í álverið og mér finnst algjör lúxus að geta hlustað á hljóðbók og farið yfir tölvupóstinn á meðan ég er keyrð í vinnuna. Þá er ég yfirleitt að vakna um hálf sjö og taka rútuna klukkan sjö.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

Þá daga sem stelpurnar mínar, tveggja og sex ára, vakna áður en ég fer af stað til vinnu, eigum við fjölskyldan oft ljúfa morgunstund öll saman í hjónarúminu, lesum bækur og spjöllum. 

Ég get eiginlega ekki ímyndað mér betri byrjun á deginum.“

Hvaða danslag fær þig alltaf í trylltan dans á gólfinu?

„Ég veit náttúrlega ekkert skemmtilegra en að dansa, svo það þarf eiginlega ekki einu sinni tónlist til þess að ég sé komin út á gólf, en ef indverski poppslagarinn Tunak Tunak Tun fer í gang, þá er ég mjög fljót að hlaupa á gólfið, líklega ásamt öllum þeim partígestum sem eru að austan, til þess að dansa rútínu sem ég ætla að fullyrða að öll að austan kunni.“

Vigdís nálgast skipulagið svolítið út frá ADHD-inu sínu og skrifar niður öll verkefni, stór og smá og byrjar vinnudaginn á að gera verkefnalista. Vigdís hefur þá reglu að vera komin upp í rúm klukkan ellefu á kvöldin. En segist brjóta þá reglu nokkurn veginn öll kvöld.

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Það eru ansi margir boltar á lofti hjá mér en sem dæmi þá erum við að ljúka við útgáfu Samfélagsskýrslu Fjarðaáls fyrir 2023. Það er mikil en ótrúlega skemmtileg vinna, að taka saman hversu vel okkur hefur gengið að ná markmiðum okkar sem tengjast samfélagslegri ábyrgð til dæmis. 

Þetta er líka frábært verkefni fyrir eina sem er ennþá vel rök á bak við eyrun, en ég gekk til liðs við Alcoa fyrir tæpum þremur mánuðum síðan. 

Fyrir utan vinnuna er ég til dæmis að kenna Zumba og var síðast liðna helgi að kenna á Zumbahelginni á Blábjörgum á Borgarfirði Eystra.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Það reynir meira á skipulagshæfnina hjá mér núna, í þessu nýja starfi, en nokkru sinni áður. 

Mín nálgun helgast svolítið af mínu ADHD, en ég passa að skrifa öll verkefni, lítil og stór, hjá mér. 

Það fyrsta sem ég geri svo þegar ég mæti á morgnanna er að setja saman verkefnalista dagsins, forgangsraða verkefnunum svo eftir tímapressu og mikilvægi en enda svo yfirleitt á að gera allt í hálf handahófskenndri röð! 

Það kemur kannski seinna að ná að einbeita sér að því að klára eitt áður en ég fer í annað en sá dagur er ekki í dag.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég hef það fyrir reglu að vera komin upp í rúm fyrir klukkan ellefu á kvöldin en ég brýt þá reglu næstum öll kvöld.“


Tengdar fréttir

„Ótrúlega vel gift honum Obba sem er A-manneskja“

Brynhildur Lilja Björnsdóttir forstöðumaður Viðskiptafræðistofnunar, segist svo vel gift A manneskju að hún fær rjúkandi heitt rjómakaffi í rúmið frá eiginmanninum á hverjum morgni. Og D-vítamín.

Vandræðalega kvöldsvæfur framkvæmdastjóri

Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri og annar stofnandi indó sparisjóðs segir morgnana besta tíma dagsins en þá situr hann með fjögurra ára syni sínum og deilir með honum ristabrauðsneið áður en aðrir á heimilinu vakna.

Gæðasamtöl við dótturina, mömmu eða vinkonu á leið í vinnu

Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Verði Tryggingum, nýtir tímann vel á leiðinni til vinnu á morgnana. Því þá á hún góða gæðastund með dótturinni í bílnum og eftir að hafa skutlað henni í skólann, hringir hún oft í vinkonu eða mömmu sína og tekur stutt spjall.

Sofnar í leikhúsi, á tónleikum, í kirkjum og fleiri stöðum

Þótt Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventurues, vakni snemma á morgnana, er hann B-maður að eðlisfari, sofnar seint á kvöldin en freistast til að mæta uppsafnaðri svefnþörf á öðrum stöðum, til dæmis í leikhúsi, flugvélum, á tónleikum eða í kirkjum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×