Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Einar Kárason rithöfundur fer yfir stöðuna í baráttunni um Bessastaði, að hætti hússins. Hann furðar sig á tilstandinu. Innlent 3. maí 2024 13:24
„Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Þegar hún vill slökkva á heilanum horfir hún á Naked gun eða aðra eins vitleysu, hún getur orðið brjáluð í umferðinni og á eina eftirsjá á pólitíska ferlinum. Lífið 3. maí 2024 10:30
Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir og Katrín Jakobsdóttir verða gestir Pallborðsins í dag, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Innlent 3. maí 2024 10:11
Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Viktor Traustason forsetaframbjóðandi segist finna fyrir létti að hluta til eftir að Landskjörstjórn úrskurðaði um gildi framboðs hans í dag. Innlent 2. maí 2024 18:59
Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Jón Gnarr mælist með umtalsvert minna fylgi í nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands en í öðrum könnunum til þessa. Katrín Jakobsdóttir trónir á toppnum í könnuninni en ekki er þó marktækur munur á henni og Höllu Hrund Logadóttur. Innlent 2. maí 2024 18:08
Framboð Viktors Traustasonar er gilt Viktor Traustason verður í framboði til embættis forseta Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landskjörstjórn. Þar kemur fram að kjörstjórn hafi komið saman klukkan fjögur í dag á fjarfundi og úrskurðaði um gildi framboðs hans. Innlent 2. maí 2024 17:05
Góður forseti Þótt ég hafi ekki alltaf verið sammála Katrínu Jakobsdóttur í stjórnmálum og alls ekki verið sáttur við allar hennar ákvarðanir á því sviði undanfarin ár þá styð ég hana heilshugar sem forsetaframbjóðanda. Skoðun 2. maí 2024 17:00
Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Baldur Þórhallsson, Halla Hrund Logadóttir og Katrín Jakobsdóttir verða gestir Pallborðsins á morgun, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Innlent 2. maí 2024 13:18
Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Viktor Traustason skilaði í morgun inn forsetaframboði sínu í annað sinn eftir að hafa fengið aukafrest til að safna meðmælum. Formaður Landskjörstjórnar segir verulega ágalla hafa verið á meðmælalistum Viktors í fyrstu atrennu. Það sé óvenjulegt að veittur sé frestur þegar ágallar eru meiriháttar, eins og í tilfelli Viktors. Innlent 2. maí 2024 11:57
Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var í Spjallinu hjá Frosta Logasyni og viðraði þar þá hugmynd sína að hér verði tekin upp samfélagsþjónusta til árs fyrir unga fólkið. Innlent 2. maí 2024 10:26
Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Prófessor í stjórnmálafræði segir betra fyrir forsetaframbjóðendur að hafa allt uppi á borðum. Í litlu samfélagi séu margar furðusögur á sveimi og mikilvægt fyrir viðkomandi að fá tækifæri til að leiðrétta þær. Þá segir hún forseta í raun gefa upp frelsi sitt þegar hann er kjörinn, þar sem hann sé á sólarhringsvakt alla daga ársins. Innlent 2. maí 2024 09:14
Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Fjöldi fólks lét sjá sig þegar Jón Gnarr forsetaframbjóðandi opnaði dyrnar að kosningaskrifstofu sinni við Aðalstræti 11 í dag. Boðið var upp á kræsingar og skemmtiatriði í tilefni opnunarinnar. Lífið 1. maí 2024 23:13
„Það er hart sótt að okkar fólki“ Verkalýðsdagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Fjöldi landsmanna kom saman í kröfugöngu í miðbæ Reykjavíkur og var gengið niður að Ingólfstorgi þar sem fram fór fjölmennur útifundur. Innlent 1. maí 2024 21:01
Úrskurðurinn felldur úr gildi Landskjörstjórn braut á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar þegar þeir úrskurðuðu að meðmælalisti forsetaframbjóðandans Viktors Traustasonar væri ógildur. Úrskurðarnefnd kosningamála hefur því fellt úrskurðinn úr gildi. Innlent 1. maí 2024 17:20
Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Formaður Samtakanna '78 segir það áhyggjuefni þegar reynt er að nota kynhneigð forsetaframbjóðanda til að gera hann tortryggilegan. Baldur Þórhallsson var spurður í viðtali í vikunni hvort mynd af honum á stað sem sagður er vera kynlífsklúbbur geti skaðað ímynd forsetaembættisins. Innlent 1. maí 2024 12:08
Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Heimili Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur forsetaframbjóðanda er hlaðið listaverkum eftir hana sjálfa. Myndirnar sem prýða veggina eru þó ekki allar úr smiðju Ísdrottningarinnar; eitt tiltekið verk fékk hún að gjöf úr áhugaverðri átt. Lífið 1. maí 2024 10:00
„Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Samtökin 78 hvetja íslenskt samfélag í heild sinni til að halda sig í málefnalega umfjöllun í aðdraganda kosninga. Það gera þau í tilefni af umfjöllun um einkamálefni Baldurs Þórhallssonar. Innlent 1. maí 2024 09:46
Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi sér eftir því að hafa greitt atkvæði með því að sækja Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, til saka í Landsdómsmálinu svokallaða. Innlent 30. apríl 2024 22:21
Hver er Kári Hansen? Kári Vilmundarson Hansen er einn þeirra sem skilaði inn undirskriftum til landskjörstjórnar með það fyrir augum að bjóða sig fram til forseta Íslands. Hann segir í stuttu spjalli við Vísi að hann hefði einfaldlega gripið gæsina, tækifærið. Innlent 30. apríl 2024 16:47
Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, og Eiríkur Ingi Jóhannson sjómaður eru gestir Pallborðsins í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 14. Innlent 30. apríl 2024 13:00
Að velja forseta Forsetakosningar eru ólíkar öllum öðrum kosningum. Þegar við kjósum okkur forseta er þjóðin að velja sér trúnaðarmanneskju, einstakling sem við treystum til að bregðast rétt við þegar viðbragða er þörf. Skoðun 30. apríl 2024 12:30
Synjunarvald gegn virkjunum Ég hef tekið það fram í skrifum mínum á fasbók, að dýrustu verðmæti þjóðarinnar fælust í þeim auðlindum náttúrunnar sem unnt væri að virkja til okuframleiðslu án þess að grípa þyrfti til kola eða olíu eins og nauðsynlegt er víðast hvar erlendis. Skoðun 30. apríl 2024 11:01
Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Sólborg Guðbrandsdóttir rithöfundur og meðlimur í kosningateymi Baldurs Þórhallssonar segir hann þurfa að svara spurningum sem aðrir forsetaframbjóðendur þurfi ekki að svara vegna kynhneigðar sinnar. Innlent 29. apríl 2024 21:46
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninganna getur hafist í síðasta lagi á fimmtudag. Landskjörstjórn úrskurðaði ellefu framboð til embættis forseta Íslands gildi í dag en framboð tveggja uppfylltu ekki skilyrði. Innlent 29. apríl 2024 20:04
„Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Viktor Traustason vill meina að meðmælalistar hans til þess að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands uppfylli öll skilyrði og furðar sig á því að Landskjörstjórn hafi komist að annari niðurstöðu. Innlent 29. apríl 2024 17:24
Hættur við að styðja Höllu Hrund Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður kom mörgum á óvart í morgun þegar hann lýsti yfir stuðningi við forsetaframboð Höllu Hrundar Logadóttur orkumálastjóra. Hann hefur nú dregið þann stuðning sinn til baka. Innlent 29. apríl 2024 16:45
Má spyrja homma að öllu? Þegar líða fer að kosningum fara Gróur þessa lands á stjá og velta hinum ýmsu málefnum fyrir sér. Fólk veltir því fyrir sér hvort Katrín Jakobsdóttir klæðist blúndu- eða boxernærbuxum, hvort Jóni Gnarr finnist betra að fara í sleik eða fá gill á bakið og hvort Ástþór Magnússon fíli BDSM eða kertaljós og jarðarber. Þessi klassísku kosningamál. Kjósendur vilja ólmir vita hvort Halla Hrund hafi skellt sér á næturklúbb með manninum sínum, hvort Arnar Þór hyggist kyssa konuna sína á Bessastöðum og hvort Steinunn Ólína hafi verið með annarri konu. Skoðun 29. apríl 2024 16:30
Baldurs og Felix-fáni falur Stuðningsmenn framboðs Baldurs Þórhallssonar og Felix Bergssonar hafa útbúið varning sem þeir selja til stuðnings framboðinu. Lífið 29. apríl 2024 14:02
Góð manneskja í djobbið Þá er orðið ljóst hverjir eru í framboði til forseta Íslands og spennandi kosningar fram undan. Ég deili ekki þeirri skoðun að forsetaembættið sé ekki til neins, en um það gildir eins og mörg hlutverk í okkar fámennissamfélagi, hvernig það gagnast fer mest eftir því hver tekur það að sér. Skoðun 29. apríl 2024 11:30
Viktor og Kári heltast úr lestinni Tvö framboð til embættis forseta Íslands voru úrskurðuð ógild á fundi Landskjörstjórnar í dag. Þeir Viktor Traustason og Kári Vilmundarson Hansen fá ekki pláss á kjörseðlinum þegar kosið verður til forseta þann 1. júní næstkomandi. Innlent 29. apríl 2024 11:17