Íslenski boltinn

Tómas Ingi um Gróttu-leiðina: „Fallegt en ofboðslega heimskt“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Næsti leikur Gróttu er gegn Stjörnunni á föstudaginn.
Næsti leikur Gróttu er gegn Stjörnunni á föstudaginn. vísir/vilhelm

Tómas Ingi Tómasson, sérfræðingur Pepsi Max stúkunnar, segir að Grótta þurfi að breyta um kúrs til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í Pepsi Max-deild karla.

Grótta fór inn í sitt fyrsta tímabil í efstu deild með nánast sama leikmannahóp og kom liðinu upp um tvær deildir á jafn mörgum árum. Seltirningum hefur gengið illa að styrkja sig og eftir leik gegn FH-ingum sagði þjálfari liðsins, Ágúst Gylfason, að það væri eins og enginn vildi koma í Gróttu sem er í ellefta og næstneðsta sæti Pepsi Max-deildarinnar.

„Þetta Gróttu-dæmi er ofboðslega fallegt, þetta er falleg hugsun. Að segjast ætla að spila á okkar mönnum sem komu okkur upp um þessar deildir er fallegt en ofboðslega heimskt,“ sagði Tómas Ingi í Pepsi Max stúkunni í gær.

„Þetta gengur bara ekki upp. Það er búið að reyna þetta á svo mörgum stöðum: þeir komust upp, þeir verða að fá að prufa. Það gengur ekki upp. Þeir reyna að spila fótbolta sem ráða engan veginn við.“

Tómas Ingi segir að Grótta verði líka að breyta um leikstíl og spila einfaldari fótbolta ef svo má segja.

„Þetta er spurning hvort það þurfi ekki aðeins að fara að breyta út af þessu að þykjast ætla að spila sig í gegnum lið sem eru öll betri en þeir,“ sagði Tómas Ingi sem tók dæmi um slakt uppspil Gróttu í leik gegn Val fyrr á tímabilinu.

„Þeir þurfa að breyta aðeins til og ef það er skrifað í samning hjá Gústa að svona eigi að spila finnst mér að þeir sem bjuggu það til þurfi að strika yfir nokkur atriði. Það verður að spila þetta öðruvísi ef þeir ætla að eiga möguleika á að vera með á næsta ári.“

Innslagið í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.

Klippa: Pepsi Max stúkan - Tómas Ingi um Gróttu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×