Innlent

Leita að hús­næði fyrir starf­semi Kolaportsins

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sölubás úr Kolaportinu frá árinu 2014.
Sölubás úr Kolaportinu frá árinu 2014. Vísir/Vilhelm

Reykjavíkurborg leitar nú að nýju húsnæði fyrir almenningsmarkað í miðborg Reykjavíkur. Starfsemin hefur verið rekin undir heitinu Kolaportið í 25 ár, lengst af í jarðhæð Tollhússins eða tuttugu ár. 

Í maí 2022 var skrifað undir viljayfirlýsingu þar sem kveðið var á um að Listaháskóli Íslands (LHÍ) myndi flytja í Tollhúsið og því þarf Kolaportið að leita annað. 

Klippa: Listaháskóli Íslands flytur í Tollhúsið

Borgin hefur samþykkt að undirbúa markaðskönnun til að finna nýjan stað fyrir starfsemina og hún verður auglýst á næstu dögum. Tillögur starfshóps um almenningsmarkaðs í miðborginni munu síðan liggja fyrir í haust. 

Hönnunarstofan m / studio_ framkvæmdi greiningu á húsnæðisþörfum og mögulegum staðsetningum markaðarins fyrir hönd borgarinnar en þar kemur meðal annars fram að styðjast þurfi við viðmið sem talin eru hafa hvað mest áhrif á velgengni almenningsmarkaða. Þau eru:

  • Sýnilegt og eftirtektarvert húsnæði
  • Nálægð við aðra þjónustu og á svæði sem fólk safnast nú þegar saman á
  • Gott aðgengi fyrir fótgangandi og akandi, nálægð við almenningssamgöngur
  • Góð aðkoma fyrir vöruflutninga og bílastæði í grennd
  • Húsnæði henti vel undir starfsemina



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×