Atvinnulíf

Til­finningin „að langa ekki til að fara í vinnuna“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það geta verið alls kyns skýringar á því hvers vegna okkur líður þannig að langa ekki í vinnuna. Ef þessi tilfinning er viðvarandi er lykilatriði að reyna ekki að bægja þessari tilfinningu frá, heldur frekar að kryfja málin og leita leiða til að fara að líða betur.
Það geta verið alls kyns skýringar á því hvers vegna okkur líður þannig að langa ekki í vinnuna. Ef þessi tilfinning er viðvarandi er lykilatriði að reyna ekki að bægja þessari tilfinningu frá, heldur frekar að kryfja málin og leita leiða til að fara að líða betur. Vísir/Getty

Það er erfitt að líða þannig að langa ekki til að mæta til vinnu. Að fá hnút í magann á sunnudagskvöldum því að það er vinna daginn eftir. Að vera aldrei í tilhlökkun fyrir næsta dag, vegna þess að það er vinna daginn eftir.

Með tilliti til þess hversu stór partur af lífinu vinnan er hjá flestu fullorðnu fólki, er það hreinlega vondur staður að vera á að langa ekki í vinnuna.

En hvað er til ráða?

Jú, að líða svona er ekki eitthvað sem einskorðast bara við þína líðan. Margir hafa meira að segja upplifað þetta á einhverjum tímapunkti í lífinu.

Við skulum rýna í nokkrar algengar skýringar og góð ráð sem geta hjálpað.

Algengar skýringar

Það er í góðu lagi og alveg eðlilegt að langa ekki í vinnuna suma daga eða í nokkra daga í röð.

En þegar þessi líðan er orðin nokkuð viðvarandi og þú ert farin/n að finna fyrir því að svona líður þér einfaldlega alla daga, er vert að velta fyrir sér hvort eitthvað af eftirfarandi skýringum eigi við:

  • Að þú sért komin í eða nálægt kulnun
  • Önnur andleg vanlíðan, til dæmis þunglyndi eða kvíði
  • Almenn óánægja með starfið sem þú ert í eða vinnustaðinn
  • Sambandið þitt við vinnufélaga eða yfirmann er ekki gott og hefur truflandi áhrif á þig
  • Að vera hrædd/ur um að standa þig ekki nógu vel í vinnunni.

Aðrar ástæður geta líka verið atriði eins og að þér finnist þú ekki metin/n af verðleikum eða að þú upplifir þig ekki sem hluta af hópnum.

Lykilatriðið er að átta okkur á því hver orsökin er og ákveða næstu skref í samræmi.  Ef það að ræða við fagaðila, til dæmis lækni, á við, þá er um að gera að bóka tíma. Ef ekki, er ágætt að velta fyrir sér hvaða aðrar leiðir gætu verið góðar.

Nokkrar hugmyndir

Ef þú metur stöðuna þannig að það að skipta um vinnu sé ekki málið og að vanlíðanin stafi ekki af einhverju alvarlegu eins og andlegu ofbeldi eða einelti á vinnustað, er hægt að velta fyrir sér öðrum leiðum.

Því engum langar að líða svona alla daga.

Sem dæmi um hugmyndir má benda á:

Ef þú getur rætt málin við einhvern, góðan vin, maka eða samstarfsfélaga, þá getur það oft hjálpað.

Að rifja upp gömlu markmiðin þín er líka ágætis leið. Því oft missum við sjónar af því hver draumurinn okkar upphaflega var um starfsframa í lífinu. Hvað við ætluðum að verða þegar við yrðum stór? Stundum fáum við hugmyndir um ný tækifæri með því einu að rifja upp þessi gömlu markmið og tengjast þeim á ný.

Ef þér finnst vanlíðanin þín stafa af því hversu neikvætt andrúmsloft er á vinnustaðnum, spenna í loftinu eða mikið um baktal, er um að gera að finna leiðir til að fjarlægja þig sem mest frá því. Án undantekninga gerir það okkur gott að forðast neikvæðni og efla okkur frekar í jákvæðni. Leiðir til að gera þetta er til dæmis að taka aldrei undir baktal, vera jákvæð sjálf, brosa meira og svo framvegis.

Svefn skiptir líka miklu máli. Stundum er ónægur svefn skýringin á því að kvíði eykst og alls kyns önnur vanlíðan. Ert þú að sofa 7-9 klukkustundir á nóttu?

Allt sem þú telur efla sjálfið þitt er líka af hinu góða. Alltaf. Ef þú telur aðstæðurnar í vinnunni vera tímabundnar og að þetta sé ekki líðan sem eigi eftir að vera viðvarandi, getur samt verið gott að horfa á öll góð ráð sem þú telur geta nýst þér í að byggja sjálfan þig upp á meðan staðan er eins og hún er.


Tengdar fréttir

Að forðast baktalið í vinnunni

Við tökum öll þátt í kjaftagangi einstaka sinnum. Heyrum einhverja djúsí kjaftasögu og berum hana á milli. Eða veltum okkur upp úr henni. Þetta er mannlegt og í raun þarf enginn að skammast sín því rannsóknir hafa sýnt að smá kjaftagangur er flestum eðlislægur. Þó ekki nema stundum í góðra vina hópi. 

Þrjú snilldarráð fyrir góð samskipti

Góð samskipti eru alltaf lykilatriði. Hvort heldur sem er í leik eða starfi. Við viljum öll standa okkur sem best í góðum samskiptum en eigum það mögulega til að gleyma okkur. 

Að undirbúa uppsögn og nýja vinnu

Eitt af því sem einkennir árstíðir hjá okkur er að við oft veljum að bíða með hluti fram að ákveðnum tíma. Að byrja í líkamsræktarátaki eða megrun í janúar er eflaust eitt af þekktari fyrirbærum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×