Atvinnulíf

Eðli­legt að starfs­menn og stjórn­endur skipti um vinnu reglu­lega

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Að upplifa ákveðinn þægindaramma í vinnunni getur líka þýtt að við erum að upplifa ákveðna stöðnun í starfi. Oft er talað um að ágætt sé að skipta um starf reglulega, á eins til þriggja ára fresti eða fyrir stjórnendur á fimm til tíu ára fresti.
Að upplifa ákveðinn þægindaramma í vinnunni getur líka þýtt að við erum að upplifa ákveðna stöðnun í starfi. Oft er talað um að ágætt sé að skipta um starf reglulega, á eins til þriggja ára fresti eða fyrir stjórnendur á fimm til tíu ára fresti. Vísir/Getty

Erlendis er víða talað um að þumalputtareglan sé sú að æskilegt sé að skipta um starf á eins til þriggja ára fresti. Að undanskildum stjórnendum, þar er oft talað um fimm til tíu ára starfstímabil.

Á Íslandi tala margir um að reyna að skipta um starf á fimm til sjö ára fresti.

Tekið skal fram að starfsþróun innan vinnustaðar flokkast er líka leið til að skipta um starf. Þannig að sumir starfa áfram fyrir sama vinnuveitenda, þótt starfið þeirra breytist.

En hvers vegna að skipta svona ört um starf? Því hér áður fyrr þótti það nokkuð gott og var mun algengara að fólk ynni hjá sama vinnuveitenda út ævina. Í það minnsta í mörg ár eða einhverja áratugi.

Að skipta um starf snýst að mörgu leyti um það hvað þú vilt og hvernig þér líður. Dæmi:

  • Finnst þér þú vera búin að læra það sem þú munt læra af þessu starfi?
  • Ertu að stefna að betur launuðu starfi eða starfi sem veitir þér meira jafnvægi einkalífs og vinnu?
  • Er þér farið að leiðast eða líða eins og þú sért ekki að upplifa áskoranir í vinnunni þinni?

Eins gætu verið breytingar hjá vinnuveitandanum. Hagræðingar, niðurskurður, skipuritsbreytingar, aukin sjálfvirknivæðing og svo framvegis.

Vefsíðan Indeed er með ýmiss góð ráð sem flokka má undir starfsframaráðgjöf. Samkvæmt þeim ættum við að horfa til breytinga ef okkur finnst:

  • Þér finnst þú vera farin að upplifa stöðnun 
  • Ef þér finnst gildin þín ekki eiga samleið með vinnuveitandanum þínum
  • Þig langar að upplifa öðruvísi vinnustaðamenningu
  • Þig langar til að takast á við fleiri krefjandi verkefni og áskoranir
  • Þér finnst styrkleikarnir þínir ekki njóta sín til fulls í núverandi starfi
  • Þig langar til að prófa allt öðruvísi starf eða vettvang
  • Þú þarft á hærri launum að halda og telur meiri líkur á þeim annars staðar

Auðvitað geta tækifærin til að skipta um starf verið mismunandi. Til dæmis vegna búsetu eða starfsvettvangs. 

En ef þú upplifir vinnuna þína ekki ánægjulega eða gefandi að miklu leyti, er alltaf tilefni til að velta fyrir sér leiðum og lausnum til breytinga. Hér er aftur minnt á að breyting á starfi hjá sama vinnuveitanda, getur líka verið leið.


Tengdar fréttir

Tilfinningin „að langa ekki til að fara í vinnuna“

Það er erfitt að líða þannig að langa ekki til að mæta til vinnu. Að fá hnút í magann á sunnudagskvöldum því að það er vinna daginn eftir. Að vera aldrei í tilhlökkun fyrir næsta dag, vegna þess að það er vinna daginn eftir.

Góð ráð: Í atvinnuleit eftir fimmtugt

Það getur verið nánast óhugnanleg tilhugsun að leita sér að nýju starfi eftir fimmtugt. Því eins og umræðan er, virðist allt benda til þess að eftir miðjan aldur geti atvinnuleit orðið sérstaklega krefjandi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×