Atvinnulíf

Tíma­bilið þegar allir fóru í tíu ljósa­tíma fyrir fermingu

Rakel Sveinsdóttir skrifar
María Rún Hafliðadóttir forstjóri Gleðipinna fermdist á Duran Duran tímabilinu enda segir hún klippinguna hafa verið í þeim anda og auðvitað fór hún í tíu tíma í ljósum eins og allir unglingar gerðu fyrir fermingu þá.
María Rún Hafliðadóttir forstjóri Gleðipinna fermdist á Duran Duran tímabilinu enda segir hún klippinguna hafa verið í þeim anda og auðvitað fór hún í tíu tíma í ljósum eins og allir unglingar gerðu fyrir fermingu þá. Vísir/Vilhelm

María Rún Hafliðadóttir forstjóri Gleðipinna, sem rekur tíu veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu, segist ein þeirra sem túperaði hárið í rot á Duran Duran tímabilinu og fór í tíu ljósatíma í beit fyrir fermingu. Eins og allir unglingar gerðu á þeim tíma.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég er A manneskja og hef alltaf verið. Ég vakna fyrir klukkan sjö.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Þrjá daga vikunnar byrja ég daginn á því að hreyfa mig, mér finnst best að fara út í náttúruna en á veturnar fer ég líka í salinn.

Heiðmörkin er minn ævintrýraheimur og hver árstíð hefur sinn sjarma. Ég er endalaust að finna nýjar leiðir og skemmtilegast finnst mér að villast í Heiðmörk.

Það fyrsta sem ég fæ mér á morgnanna er Lýsi og íslensk bláberjasaft. Ég hef mikla trú á þessu combó. Ég er ein af þeim sem tekur lýsið með í fríið.“

Áttu þér eitthvað minnistætt tískuslys frá unglingsárunum?

Jú ætla það sé ekki á fermingaárinu sem ég fékk mér Duran Duran klippingu, túperaði hárið í rot og notaði mjög mikið hárlakk en ég læt ekki mynd fylgja með. 

Á þessum tíma voru allir unglingar í ljósum og það fermdist engin nema að taka tíu tíma í beit. 

Svo notuðum við vinkonurnar Zinkpasta á varirnar en það er skjanna hvítt efni sem fæst í apótekum. En mér fannst þetta skemmtilegur tími í lífinu og fræbær tónlist á þessum árum. 

Ég sakna Whitney og George Michael.“

María hefur prófað ótal kerfi til að halda utan um skipulagið í vinnunni en segir skrifblokkina, aðgerðarlista og excel það sem virkar best fyrir sig. María er með fasta fundardaga í viku og segir það hjálpa mikið.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Það er margri boltar á lofti og verkefnin afar fjölbreytt. Ég að vinna með mörg vörumerki og hvert vörumerki þarf sína athygli. Vöruþróun er sífellt í gangi en það er gaman að segja frá því að í síðustu viku vorum við að kynna nýjan borgara á Fabrikkunni. Við erum í samstarfi við Laufey Grammy stjörnu okkar Íslendinga. Hún er svo frábær listamaður og manneskja með góða nærveru.

Starfsmannamálin eru á borðinu mínu alla daga en ég er svo heppin að vinna með frábæru fólki. Í rekstrinum okkar þarf maður stöðugt að vera á tánum. Það þarf að passa launakostnað og sífellt að finna leiðir til að bæta reksturinn en á sama tíma að bæta þjónustustígið.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Vá hef prófað margar aðferðir. 2011 þegar ég kynntist verkfærakistu Lean þá notaðist ég við töflu á vegg; lean visual management board og mér fannst það bylting. Öll verkefnin sem voru í gangi fóru á töfluna og ég missti enga bolta. 

En í dag skrái ég verkefni mikið í Outlook og ég er með nokkra aðgerðalista. Einn sem á að klárast innan dags og svo annnan sem er til nokkra vikna og ég tímaset verkefnin þar.

Svo er ég með fasta fundardaga í viku það hjálpar mikið. 

Ég er að vinna í tölvupóstinum allan daginn og mætti koma því í betra ferli hjá mér. 

Ég hef prófað ýmiss kerfi til að halda utan um verkefnin en skrifblokkin og excel er það sem virkar best fyrir mig í dag.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég reyni að vera komin uppí fyrir klukkan ellefu. Ég er mjög kvöldsvæf. Ég elska það að leggjast á koddann í mjúka rúmið mitt.“


Tengdar fréttir

Gulur, rauður eða bangsadagur reynir á skipulagsmálin

Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri segir eiginmanninn dekra við sig á morgnana með góðum kaffibolla. Halla endurnærir hugann fyrir svefn með útiveru eða með því að taka lag á harmónikkuna.

Gæti ekki einu sinni hlustað á sjálfan sig syngja

Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri Samkaupa er einn þeirra sem vaknar á undan klukkunni. Sem þó hringir klukkan sjö. Gunnar viðurkennir að hann er afburðar lélégur söngvari, en trommar á stýrið.

Erfitt að standast kombó af súkkulaði og söltu með smá krönsi

Bókaormurinn Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, á erfitt með að standast ákveðnar freistingar þegar kemur að namminu. Enda segir hún vísindin rökstyðja að sumt er varla hægt að standast.

Sprenghlægilegt að sjá pabba sinn á dansgólfinu

Ólöf Kristrún Pétursdóttir, stjórnarkona í UAK, verkefnafulltrúi hjá KLAK-Icelandic Startups og nemi í hátækniverkfræði í HR, segist þeim megin í lífinu að hláturinn lengi lífið og á auðvelt með að skella uppúr yfir alls konar hlutum í daglegu lífi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×