Íslenski boltinn

Blikar horfa út fyrir land­steinana

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Daniel Obbekjær er að mestu alinn upp hjá OB. Hann á að baki fjölda landsleikja fyrir yngri landslið Danmerkur.
Daniel Obbekjær er að mestu alinn upp hjá OB. Hann á að baki fjölda landsleikja fyrir yngri landslið Danmerkur. OB

Breiðablik er í þann mund að semja við tvo leikmenn frá Skandinavíu sem munu leika með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu á komandi leiktíð. Annar er Dani sem spilaði síðast í Færeyjum og hinn er norskur framherji sem hefur nær eingöngu spilað í heimalandinu.

Fótbolti.net greinir frá því að danski miðvörðurinn Daniel Obbekjær sé að ganga í raðir Breiðabliks. Um er að ræða réttfættan miðvörð sem er 1.94 metri á hæð. Undanfarin tvö ár hefur Obbekjær spilað með 07 Vestur í Færeyjum.

Hann á að baki tvo leiki fyrir OB í dönsku úrvalsdeildinni sem og hann hefur spilað á Ítalíu og í Kanada.

Norski fjölmiðillinn Nettavisen greinir frá því að Benjamin Stokke, 33 ára gamall framherji, sé við það að ganga í raðir Breiðabliks. Hann hefur nær allan sinn feril leikið í Noregi ef frá er talið eitt tímabil með Randers í Danmörku. Þar lék hann 34 leiki í efstu deild og skoraði fimm mörk.

Í Noegi hefur hann leikið með Mjöndalen, Vålerenga, Levanger, Sandefjord og nú síðast Kristiansund. Þar var hann liðsfélagi Brynjólfs Darra Willumssonar en sá er uppalinn hjá Breiðabliki.

Stokke var öflugur upp við mark andstæðinganna á síðustu leiktíð og skoraði alls 17 mörk í 34 leikjum þegar Kristiansund tryggði sér sæti í norsku úrvalsdeildinni á nýjan leik. Hann er nú samningslaus og virðist vera á leið í Kópavoginn.

Stokke hefur spilað víða á ferlinum. Þar á meðal með Vålerenga.Vålerenga

Miklar breytingar hafa orðið á liði Blika á milli ára en Halldór Árnason tók við þjálfun liðsins undir lok síðasta tímabil eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar.

Anton Logi Lúðvíksson elti Óskar Hrafn til Haugesund. Ágúst Eðvald Hlynsson og Davíð Ingvarsson fóru til Danmerkur, Ágúst Orri Þorsteinsson fór til Genoa á Ítalíu, Gísli Eyjólfsson til Svíþjóðar, Klæmint Olsen aftur til NSÍ í Færeyjum og Oliver Stefánsson til ÍA.

Blikar hafa líka verið duglegir að fá til sín leikmenn en Aron Bjarnason kom frá Sirius í Svíþjóð. Arnór Gauti Jónsson kom frá Fylki og uppaldi Blikinn Kristinn Jónsson kom frá KR.

Breiðablik mætir FH þann 8 apríl næstkomandi í 1. umferð Bestu deildar karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×