Sport

„Djöfull langar mig að sjá Mike Tyson rota þetta fífl“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Heimsmeistarinn fyrrverandi, Mike Tyson, mætir YouTube-stjörnunni Jake Paul í hringnum.
Heimsmeistarinn fyrrverandi, Mike Tyson, mætir YouTube-stjörnunni Jake Paul í hringnum. getty/Christian Petersen

Henry Birgir Gunnarsson er spenntur fyrir boxbardaga Mikes Tyson og Logans Paul. Hann fer ekkert í felur með hvorum hann heldur.

Þann 20. júlí næstkomandi mætast þeir Tyson og Paul á heimavelli Dallas Cowboys, AT&T-vellinum. Bardaginn verður sýndur í beinni útsendingu á Netflix.

Tyson verður 58 ára gamall í júní en hann barðist síðast gegn Roy Jones Jr. 2020. Paul er aftur á móti 27 ára gamall.

Bardagi þeirra Tysons og Pauls var til umræðu í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, á föstudaginn.

„Áhugaverðasta íþróttafréttin, innan ákveðinna gæsalappa kom í gær [á fimmtudaginn]. Iron Mike Tyson er að fara berjast í hnefaleikum, 58 ára gamall, á móti þessu YouTube fífli sem Jake Paul er,“ sagði Henry Birgir.

„Ég ætla bara að segja fyrir minn smekk, ég gíraðist allur upp. Þetta Mike fokking Tyson. Maður var tilbúinn að vaka í þrjá sólarhringa til að sjá hann berjast í gamla daga. Það verður líklega sett einhvers konar áhorfsmet því þetta verður ekki bak við greiðsluvegg (e. pay-per-view). Það eru allir með Netflix og eru að fara að horfa á þetta. Hann er þrjátíu árum eldri heldur þessi Paul sem hefur gert frábærlega í að láta fólk hata sig. Djöfull langar mig að sjá Mike Tyson rota þetta fífl.“

Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn er einnig aðgengilegur á Spotify sem og öllum hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×