Enski boltinn

Utan vallar: Leikur fyrir snjall­síma­kyn­slóðina

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikur helgarinnar á Old Trafford fór með fólk í gegnum allan tilfinningaskalann.
Leikur helgarinnar á Old Trafford fór með fólk í gegnum allan tilfinningaskalann. Simon Stacpoole/Getty Images

Manchester United vann 4-3 sigur á Liverpool í framlengdum leik þegar liðin mættust á Old Trafford í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í gær, sunnudag. Má með sanni segja að leikurinn hafi haft allt sem góður fótboltaleikur þarf að hafa.

Í dag er mikið rætt og ritað um hvernig eigi að breyta því hvernig við neytum fótbolta. Það er talið að snjallsímakynslóðin svokallaða geti ekki horft á heilan 90 mínútna fótboltaleik, það þurfi eitthvað meira til að halda athygli yngstu kynslóðarinnar. 

Undirritaður ætlar svo sem ekki að finna lausnir á öllum þessum vandamálum eða hvernig eigi að vekja athygli yngstu kynslóðarinnar þar sem eldra fólk hefur vælt yfir því yngra allt frá örófi alda.

Að því sögðu þá hafði leikur helgarinnar allt það sem dregur fólk að fótbolta til að byrja með. Það er þekkt stærð að bikarleikir eru oftar en ekki opnari en þeir sem spilaðir eru í deildarkeppni og það átti svo sannarlega við á Old Trafford í gær, sunnudag.

Ekki nóg með að þarna væru erkifjendur að mætast þá er annað liðið á blússandi siglingu, búið að vinna deildarbikarinn og í harðri baráttu um enska meistaratitilinn sem og í Evróputitil – þó að um Evrópudeildina sé að ræða. Hitt liðið er að reyna koma sér í baráttuna um Meistaradeildarsæti og hvað titla varðar þá er enska bikarkeppnin eini möguleiki liðsina á því að lyfta málmi í ár.

Það hefur oft verið sagt að gengi Man United og Liverpool sé aukaatriði þegar þessi tvö lið mætast. Það á enn betur við þegar þau mætast nokkuð vængbrotin í bikarkeppni. Að þessu sinni var niðurstaðan leikur sem mun aldrei gleymast. Til að byrja með var dramatíkin rosaleg: 

  • Man United komst óvænt yfir þökk sé Scott McTominay.
  • Liverpool svaraði með mörkum frá Alexis Mac Allister og Mohamed Salah.
  • Varamaðurinn Antony jafnaði metin (með hægri) þegar þrjár mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Því þurfti að framlengja.
  • Harvey Elliott kom Liverpool yfir.
  • Marcus Rashford jafnaði metin og það stefndi í vítaspyrnukeppni.
  • Varamaðurinn Amad Diallo tryggði hins vegar Man Utd sigurinn í blálok framlengingar og fékk svo sitt annað gula spjald fyrir að rífa sig úr treyjunni.

Mörkin segja ákveðna sögu þó alls ekki alla. Bæði lið fengu fjölmörg færi, Liverpool skorðai mark sem var dæmt af vegna rangstöðu og Rashford var nálægt því að tryggja Man Utd sigur í blálok venjulegs leiktíma.

Framlengingin var svo bara ringulreið frá A til Ö. Sem dæmi má benda á hvernig uppstilling heimamanna var í framlengingu. Bruno Fernandes, sem leikur oftast nær í svæðinu á bakvið framherja liðsins, var örmagna og kláraði leikinn í miðverði. Hægri vængmaðurinn Antony var mættur í vinstri bakvörðinn og Harry Maguire var óvænt að taka hlaup inn fyrir vörn gestanna.

Leikplan, skipulag, draumórar um að halda í boltann og spila skipulagðan fótbolta – eitthvað sem einkennir flest af bestu liðum dagsins í dag – fór allt út um gluggann. 

Niðurstaðan var ein allsherjar ringulreið sem kórónaðist í sigurmarki Man United þar sem liðið vann boltann eftir hornspyrnu Liverpool þegar framlengingunni var svo gott sem lokið.

Ofan á allt þetta þá fékk leikurinn líka að fljóta en myndbandsdómari leiksins skipti sér skemmtilega lítið af. Úr varð skemmtun fyrir alla fjölskylduna, þó svo að Liverpool-hlutinn hafi ef til vill verið heldur súr í lok leiks. Mögulega jafn súr og þjálfari liðsins.

Slíkur var hraðinn í leiknum, þá sérstaklega framlengingunni, að ef fólk blikkaði þá voru allar líkur að það hafi misst af dauðafæri eða marki. 

Kannski er því lausnin á áhugaleysi yngstu kynslóðarinnar ekki að fjölga leikjum enn frekar og gera leikinn í kjölfarið hægari þar sem leikmenn eru líkamlega og andlega örmagna. Ef til vill þarf bara að henda leikplani, skipulagi og þeirri tölfræðiáráttu sem einkennir alla umræðu dagsins í dag út um gluggann og leyfa ringulreiðinni að taka yfir. 

Það var allavega grunnurinn að einum skemmtilegasta leik sem undirritaður hefur séð lengi, þó það hjálpi vissulega að halda með liðinu sem stóð uppi sem sigurvegari.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×