Innlent

Nýr Grindavíkurvegur vonandi lagður til fram­búðar

Sólrún Dögg Jósefsdóttir og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa
Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur hjá Eflu. 
Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur hjá Eflu.  Vísir/Vilhelm

Jarðverkfræðingur hjá Eflu segir óvissu ríkja um hraunrennsli í átt að Suðurstrandavegi þrátt fyrir að útlitið sé ágætt sem stendur. Unnið er að lagningu nýs Grindavíkurvegar sem hann vonar að verði til frambúðar. 

Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur hjá Eflu segir stöðuna á byggingu varnargarðanna góða. 

„Við erum aðallega að vinna núna vestan við bæinn í varnargörðunum sem koma í beinu framhaldi af görðunum sem beindu hrauninu vestur fyrir bæinn í eldgosinu í janúar.“

Hann segir að þunginn að flotanum vinni nú að byggingu tveggja varnargarða. Annar þeirra fylgi Nesveginum og hinn verji ratsjárstöðina og fjarskiptastöðina. 

„Þar á milli verður nokkuð umfangsmikil lægð sem við áformum að taki við hraunrennsli ef það kemur hérna megin.“

Fólk hafði áhyggjur af Suðurstrandarveginum á tímabili, hvernig lítur það út?

„Það lítur ágætlega út eins og staðan er núna. Hraunið er allt að safnast fyrir þarna upp frá en svo vitum við ekkert. Ef þetta fer að halda áfram þá getur þetta auðvitað farið að labba sér áfram þarna niður eftir. Það er bara staða sem við verðum að bíða eftir og sjá hvað gerist,“ segir Jón Haukur.

Samhliða þeirri vinnu er verið að leggja nýjan Grindavíkurveg sem krækir fyrir hraunið sem rann í janúar og kemur upp í náttúrulega hækkun milli áðurnefndra varnargarða. 

„Þannig verður það vonandi til frambúðar, að vegurinn fer um þennan lágpunkt og hækkar sig síðan upp á milli varnargarðanna og inn í bæinn. Þannig losnum við við það að þurfa að vera með tækjaflotann alltaf standandi yfir þessu ef það kemur til einhvers atburðar.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×