Innlent

Um­deilt af­urða­stöðva­frum­varp sam­þykkt á Al­þingi í gær

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Frumvarpið var samþykkt með atkvæðum stjórnarflokkanna og Miðflokksins.
Frumvarpið var samþykkt með atkvæðum stjórnarflokkanna og Miðflokksins. Vísir/Vilhelm

Frumvarp matvælaráðherra um breytingar á búvörulögum var samþykkt á Alþingi í gær, þrátt fyrir hörð mótmæli Samkeppniseftirlitsins, Neytendasamtakanna, Alþýðusambands Íslands, VR, Félags atvinnurekenda og fleiri.

Frumvarpið tók verulegum breytingum í meðförum atvinnuveganefndar og sögðu ofangreindir í raun um nýtt frumvarp að ræða. Frávísunartillaga frá þingmönnum Pírata og Flokks fólksins var felld.

Lögin voru samþykkt með 26 atkvæðum stjórnarflokkanna og Miðflokksins gegn 19 atkvæðum Pírata, Flokks fólksins, Viðreisnar og Samfylkingarinnar.

Vísir fjallaði um málið í gær, sem varðar undanþágu afurðastöðva í kjötiðnaði frá samkeppnislögum.

Fyrrnefndir aðilar segja það munu stórskaða hagsmuni neytenda, launþega og verslunar og vega að forsendum nýgerðra kjarasamninga. 

Samkeppniseftirlitið segir lögin munu hafa mun víðtækari áhrif en upphaflega frumvarpið hefði haft. Kjötafurðarstöðvum verði samkvæmt lögunum heimilt að hafa fordæmalaust samráð, heimilt að sameinast án takmarkana og veitt fullt sjálfdæmi um verðlagningu til bænda og smásala og neytenda.

Þá hefur verið varað við því að sú staða gæti komið upp að afurðastöðvarnar sameinuðust í eitt einokunarfélag, eins og gerðist í mjólkuriðnaðinum þegar honum var veitt undanþága frá samkeppnislögum.


Tengdar fréttir

Breytingarnar séu stórhættulegar og á kostnað launafólks

Alþýðusamband Íslands telur með öllu óviðunandi að stjórnvöld stefni beinlínis að því að skerða kjör launafólks og neytenda með stórhættulegum breytingum á búvörulögum. Jafnframt er vakin athygli á að sú hringamyndun og verðstýring sem stefnt er að með frumvarpinu vinnur beinlínis gegn nýgerðum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. 

Vara eindregið við frumvarpi sem leiði til verðbólgu

VR, Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) og Félag atvinnurekenda (FA) vara eindregið við samþykkt frumvarps um undanþágu afurðastöðva í kjötiðnaði frá samkeppnislögum, sem nú liggur fyrir Alþingi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×