Innlent

Grind­víkingar boða til mót­mæla gegn Þór­kötlu

Árni Sæberg skrifar
Grindvíkingar ætla að mótmæla vinnubrögðum Þórkötlu á Austurvelli á morgun. Örn Viðar Skúlason er framkvæmdastjóri félagsins.
Grindvíkingar ætla að mótmæla vinnubrögðum Þórkötlu á Austurvelli á morgun. Örn Viðar Skúlason er framkvæmdastjóri félagsins. Vísir

Boðað hefur verið til mótmæla á Austuvelli klukkan 17 á morgun, þar sem vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu verður mótmælt. Borið hefur á mikilli óánægju meðal Grindvíkinga, sem vilja fá eignir sínar keyptar upp sem fyrst.

Það er Grindvíkingurinn Sverrir Árnason sem boðar til mótmælanna á Facebook undir yfirskriftinni „Mætum á Austurvöll: Styðjum Grindvíkinga!“.

„Mótmælum vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu sem heldur Grindvíkingum í spennutreyju vegna uppkaupa húseigna. Ekkert ætlar að standast af því sem FÞ hefur gefið út! Engar fréttir af framvindu frá félaginu í þessari viku þegar allt átti að vera komið á fullt,“ segir í viðburðinum á Facebook.

Keyptu fyrstu eignina í síðustu viku

Greint var frá því á föstudag í síðustu viku að Þórkatla hefði gengið frá kaupum á fyrstu eigninni í Grindavík. Viðkomandi fasteignareigendur myndu fá greitt út 95 prósent af kaupverði eigna þeirra í þessari viku.

Síðan þá hafa litlar sem engar fréttir borist af starfsemi félagsins og ef marka má umræðu meðal Grindvíkinga á samfélagsmiðlum hefur hún ekki verið mikil. Þá hefur Vísi borist fjöldi ábendinga um seinagang hjá félaginu.

Missa af eignum vegna seinagangsins

Það sem Grindvíkingar hafa helst gagnrýnt er að fólk missir af þegar samþykktum kauptilboðum þar sem erfiðlega gengur að ná fé út úr Þórkötlu.

„Margir eru búnir að vera í erfiðri skuldastöðu og lifa frá degi til dags. Þá eru margir eru að missa af eignum vegna þess að dagsetningar í kauptilboðum eru fyrndar og lenda í því að tilboðum er rift og söluverð eigna er hækkað. Enn fleiri munu lenda í þessu ef ekki er settur fullur kraftur í þetta, það þýðir meiri mannskapur og sólarhringsvaktir! Þolinmæðin er þrotin, taugarnar farnar,“ segir í viðburðinum.

Að lokum eru allir hvattir til þess að mæta á Austurvöll klukkan 17 á morgun, hvort sem þeir eigi beinna hagsmuna að gæta eða vilji einfaldlega standa með Grindvíkingum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×