Markaþurrð McGoldrick á enda er Sheffield kjöldróg Chelsea

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
David McGoldrick var faðmaður innilega eftir að skora sitt fyrsta mark á tímabilinu.
David McGoldrick var faðmaður innilega eftir að skora sitt fyrsta mark á tímabilinu. EPA-EFE/Peter Powell

Sheffield United vann nokkuð óvæntan 3-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag. Baráttan um Meistaradeildarsæti er því galopin en Manchester United á leik til góða á Chelsea. 

Það að Sheffield hafi unnið 3-0 er einkar óvænt en það sem er enn óvæntara er að David McGoldrick skoraði tvívegis en þessi 32 ára gamli Íri hafði ekki enn skorað fyrir Sheffield í ensku úrvalsdeildinni.

McGoldrick hafði ekki skorað í 25 leikjum til þessa í deildinni þegar hann fylgdi eftir skoti sem Kepa Arrizabalaga varði vel í marki Chelsea strax á 18. mínútu. Reece James spilaði McGoldrick réttstæðan sem gat ekki annað en skorað.

Oliver McBurnie tvöfaldaði forystu Sheffield fyrir hálfleik eftir sendignu Enda Stevens. Það var svo á 77. mínútu sem McGoldrick gulltryggði sigur heimamanna með öðru marki sínu í leiknum.

Lokatölur 3-0 og bæði Leicester City og Manchester United gætu hoppað upp fyrir Frank Lampard á næstu tveimur dögum. Chelsea er sem stendur með 60 stig í 3. sæti deildarinnar á meðan Leicester er í 4. sætinu með 59 stig. Lærisveinar Brendan Rodgers eiga leik til góða gegn Bournemouth á morgun og gætu því farið upp í þriðja sætið.

Manchester United mætir Southampton á mánudag og getur með sigri þar einnig farið yfir Chelsea í töflunni. Sheffield er svo í 6. sæti með 54 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira