Innlent

Ekki til­búin að sleppa taki af Kola­portinu

Bjarki Sigurðsson skrifar
Einar Þorsteinsson borgarstjóri fyrir utan Kolaportið.
Einar Þorsteinsson borgarstjóri fyrir utan Kolaportið. Vísir/Sigurjón

Unnið er að því að finna nýja staðsetningu fyrir starfsemi Kolaportsins. Listaháskólinn flytur brátt í núverandi húsnæði þess en borgin er ekki tilbúin að sleppa taki af eina markaðstorgi miðbæjarins.

Kolaportið hefur verið rekið hér á neðstu hæð Tollhússins í tuttugu ár. Nú er komið að tímamótum og það þarf að finna annað húsnæði fyrir starfsemina.

Fyrir tæpum tveimur árum var ákveðið að öll starfsemi Listaháskóla Íslands yrði sameinuð í Tollhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík og að Kolaportið þyrfti að víkja. Borgarstjórn vill ekki að með þessu hverfi eini almenningsmarkaður Miðbæjarins.

Málið hefur verið til skoðunar innan borgarinnar um nokkurt skeið og hafa sex staðsetningar verið skoðaðar sérstaklega. Sú staðsetning sem borginni líst best á er Miðbakkinn við Reykjavíkurhöfn, beint á móti Tollhúsinu.

Leita að réttum rekstraraðila

Nú verður hins vegar framkvæmd markaðskönnun til að finna nýjan stað og nýja rekstraraðila fyrir markaðstorg. Að sögn Einars Þorsteinssonar borgarstjóra verða rekstraraðilar að taka mið af breyttu landslagi.

„Hluti þessarar verslunar hefur færst annað. Fyrst fór það á netið, verslanir með notuð föt. Svo hafa sprottið upp þessar búðir, Barnaloppan og alls konar loppubúðir. Þetta er svona aðeins að gerjast en ég held að það sé gott að byrja með autt blað en sýn á það að við viljum hafa markað í Reykjavík,“ segir Einar.

Kolaportið hefur verið rekið í Tollhúsinu síðastliðin tuttugu ár.Vísir/Sigurjón

Kjörinn í borgarstjórn í Kolaportinu

Og Kolaportið á sér sinn stað í hjarta Einars, til að mynda fór kosningavaka Framsóknarflokksins þar fram þegar Einar var kjörinn inn í borgarstjórn fyrir tveimur árum síðan.

„Mér hefur alltaf þótt gaman að fara í Kolaportið. Það er ákveðin stemning og gaman að skoða. Stundum kaupa, kaupa harðfisk og svona,“ segir Einar.

Hér fyrir neðan má sjá klippu af ræðu Einars frá kosningavöku Framsóknarflokksins árið 2022.

Klippa: Sigurreifur Einar heldur ræðu á kosningavöku Framsóknar


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×