Innlent

Herjaði á Krónuna og fékk fimm mánuði

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn hafði matvöru og vítamín að andvirði 2015 þúsund króna með sér út úr Krónunni í Skeifunni.
Maðurinn hafði matvöru og vítamín að andvirði 2015 þúsund króna með sér út úr Krónunni í Skeifunni. Vísir/Egill

Karlmaður hefur verið dæmdur til fimm mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjölda þjófnaðarbrota. Hann virðist hafa haft dálæti á Krónunni þar sem hann stal vörum fyrir ríflega 300 þúsund krónur.

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 14. febrúar en birtur í dag, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir tólf þjófnaðarbrot. Fjögur brotanna hafi verið framin í verslunum Krónunnar, þar af eitt þar sem hann hafi stolið matvörum og vítamínum að andvirði 215 þúsund króna.

Þá hafi hann stolið úr fjölda verslana í miðbæ Reykjavíkur, mest vörum að andvirði 95 þúsund króna í GK Reykjavík.

Maðurinn hafi játað brot sín skýlaust og málið verið tekið til dóms án frekar sönnunarfærslu vegna þess og brot mannsins talin sönnuð.

Þá segir að maðurinn eigi nokkurn sakarferil að baki. Hann hafi sjö sinnum hlotið refsidóma vegna auðgunarbrota, þar af sex sinnum fyrir þjófnað. Nú síðast hafi honum verið gert að sæta sex mánaða fangelsi með dómi árið 2022 en þá hafi eftirstöðvar reynslulausnar vegna eldri dóms frá árinu 2021 verið dæmdar upp.

Brot hans samkvæmt þremur ákæruliðum hafi verið framin fyrir uppkvaðningu þess dóms og því yrði honum dæmdur hegningarauki vegna þeirra brota.

Refsing hans hafi verið með hliðsjón af sakarefni, dómvenju og ákvæði almennra hegningarlaga um brotasamsteypu ákveðin sex mánaða fangelsisvist. Með vísan til sakarferils hafi ekki verið talið unnt að skilorðsbinda refsinguna.

Þá var fallist á einkaréttarkröfur Krónunnar upp á ríflega 300 þúsund krónur og kröfu ÁTVR upp á 8.138 krónur vegna þjófnaðar á tveimur áfengisflöskum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×