Innlent

„Mikil menningar­verð­mæti farin“

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Mikil menningarverðmæti eru farin með bruna í gamla Hafnarhúsinu á Selfossi, að sögn eiganda. Hann ætlar að byggja húsið upp á ný.
Mikil menningarverðmæti eru farin með bruna í gamla Hafnarhúsinu á Selfossi, að sögn eiganda. Hann ætlar að byggja húsið upp á ný. vísir

„Það stóð til að gera þetta hús upp sem hluta af nýjum miðbæ. Þetta er sögufrægt hús og þess vegna mikil menningarverðmæti farin,“ segir Leó Árnason stjórnarformaður Sigtúns sem á Gamla Hafnartúns-húsið á Selfossi, þar sem eldur kviknaði í kvöld. Slökkvistörf standa enn yfir en ljóst er að tjónið er mikið. 

Húsið sem um ræðir er sögufrægt fyrir ýmsar sakir. Það var byggt af Sigurði Ó. Ólafssyni, sem var alþingismaður Árnessinga árin 1959-1967. Í húsinu var kaupfélagið Höfn, sem Sigurður Óli var yfir, starfrækt en síðustu ár hefur ekki verið föst búseta í húsinu. 

„Við eigum ekki stóra og langa sögu, Selfoss, en þetta var eitt af þeim húsum sem má segja að hafi verið stolt bæjarins.“

Leó Árnason, stjórnarformaður Sigtúns Þróunarfélags.Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Það átti að gera þessu húsi hátt undir höfði í nýjum miðbæ, en nú er lítið annað að gera en að byggja það bara frá grunni. Það verður endurbyggt aftur, í einhverri mynd,“ segir Leó í samtali við Vísi. Leó er stjórnarformaður Sigtúns þróunarfélags sem hefur staðið fyrir uppbyggingu nýja miðbæjarins á Selfossi. 

„Það stóð til að færa það innan lóðar og gera það upp. En maður er í hálfgerðu sjokki.“

Hann kveðst ekki hafa forsendur til að meta hvað gæti hafa valdið því að eldur kviknaði í húsinu. 

„Það er annarra að meta og finna út úr því.“

Eldurinn er aðallega á efstu hæð og háalofti hússins. 


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×