Sport

Littler svarar fyrir sig: „Hver leikur við mig er bikarúrslitaleikur“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luke Littler segir að allir vilji vinna hann.
Luke Littler segir að allir vilji vinna hann. getty/Charlie Crowhurst

Luke Littler hefur svarað Ricardo Pietreczko sem gagnrýndi strákinn eftir leik á Opna belgíska mótinu í pílukasti og sagði hann hrokafullan.

Littler sigraði Pietreczko, 7-3, í undanúrslitum Opna belgíska. Pietreczko, eða Pikachu eins og hann er jafnan kallaður, var ósáttur eftir viðureignina og lét Littler heyra það uppi á sviðinu. Hann var ekki hættur og í færslu á Instagram sagði hann að Littler væri hrokafullur.

„Ég met hann mikils, að geta spilað svona leik á þessum aldri, en ég vona að hrokinn komi í bakið á honum,“ skrifaði Pietreczko.

Í færslu á Twitter sagðist Littler ekki vita hvað Pietreczko væri að meina og hann útskýrði mál sitt enn frekar í viðtali í gær.

„Ég veit ekki hvað ég gerði vitlaust í þessum leik. Margir sögðu að það hefði verið þegar ég gat tekið 147 út og reyndi við þrefaldan nítján. Ég reyndi svo við toppinn og miðjuna því ég elska toppinn. Ef ég hefði hitt toppinn hefði ég getað klárað þetta með skoti í miðjuna en ég hitti ekki. Hann lét það fara í taugarnar á sér í gegnum leiknum,“ sagði Littler.

Að hans mati hefur frammistaða hans að undanförnu og nýtilkomin frægð gert hann að andstæðingi sem allir vilja vinna.

„Allt frá því ég skaust fram á sjónarsviðið veit ég að allir vilja sigra mig. Jafnvel fjölskyldan og umboðsmaðurinn hafa sagt að ég verði alltaf að eiga toppleik því fyrir andstæðingum mínum er hver leikur við mig bikarúrslitaleikur,“ sagði Littler.

Hann hrósaði sigri á Opna belgíska, hans fyrsta móti á Evrópumótaröðinni. Hann náði meðal annars níu pílna leik í úrslitunum gegn Rob Cross.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×