Innlent

Síðasta flugið í bili frá Akur­eyri til London: Millilandaflugið stór­mál fyrir Norð­lendinga

Lovísa Arnardóttir skrifar
Njáll Trausti kom heim frá London á þriðjudag og flaug beint norður.
Njáll Trausti kom heim frá London á þriðjudag og flaug beint norður. Mynd/Njáll Trausti Friðbertsson

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður og flugumferðarstjóri, segir flug Easyjet frá Gatwick í London til Akureyrar í vetur hafa gengið svakalega vel. Sætanýting hafi verið góð. Hann segir það stórmál fyrir Norðlendinga að svo stórt flugfélag fljúgi beint til Akureyrar.

„Þetta var síðasta flugið í vetur. Þeir byrjuðu í lok október en eru núna að skipta í sumaráætlun og horfa þá meira til Miðjarðarhafsins,“ segir Njáll Trausti sem birti í morgun mynd af vélinni í vetrarfærð á Akureyrarflugvelli. 

Færðin á Akureyrarflugvelli í morgun þegar Easyjet lenti í síðasta sinn í bili á vellinum. Mynd/Njáll Trausti Friðbertsson

Flugfélagið hóf flug norður í október á síðasta ári og flaug tvisvar í viku, þriðjudaga og fimmtudaga. Fluginu verður haldið áfram næsta vetur en á vef þeirra er hægt að bóka sér flug til Akureyrar í október og nóvember.

Myndu vilja millilandaflug allan ársins hring

Hann segir afar ánægjulegt að flugfélagið ætli að halda áfram næsta vetur en að Norðlendingar og ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi myndu auðvitað kjósa að hægt væri að fljúga þessa leið allan ársins hring.

„Við erum ánægð með þessa byrjun en það væri auðvitað æskilegt að þetta væri allt árið. Þetta hefur verið vel nýtt og gengið vel,“ segir Njáll Trausti sem sjálfur nýtti sér tækifærið og flaug til London með Easyjet í síðustu viku.

„Ég kom heim á þriðjudaginn og þetta er mjög þægilegt. Það er ekkert hægt að neita því,“ segir Njáll Trausti og að þetta beina flug spari Norðlendingum bæði mikinn tíma og pening.

„Þetta er það sem fólk hefur alltaf verið mjög áhugasamt um. Að geta flogið beint frá Akureyrarflugvelli til áfangastaða erlendis.“

Vill enn frekari styrkingu alþjóðaflugvallakerfisins

Hann segir að í framtíðinni myndi hann vilja sjá meira gert á bæði Akureyri og Egilsstöðum hvað varðar millilandaflug og þannig alþjóðaflugvallakerfi landsins styrkt.

Easyjet er ekki eina flugfélagið sem hefur flogið beint frá Akureyri en Njáll Trausti telur þetta líklega stærstu tilraunina af stórum flugrekenda í millilandaflugi til Akureyrar.

„Ég held að fólk horfi bjart fram á veginn að þetta flug haldi áfram.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×