Innlent

Loka Bláa lóninu vegna gasmengunar

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Öllum starfsstöðvum Bláa lónsins hefur verið lokað til klukkan 14.
Öllum starfsstöðvum Bláa lónsins hefur verið lokað til klukkan 14. Vísir/Einar

Vegna mengunar frá eldgosinu í Sundnhjúkagígaröðinni á Reykjanesskaga þurfti að loka öllum starfsstöðvum Bláa lónsins í morgun. Opnað verður aftur klukkan 14. 

Öllum gestum var vísað upp úr lóninu í morgun og hótel rýmd. 

„Undanfarna mánuði höfum við verið minnt á krafta náttúrunnar og þau áhrif sem þeir hafa óumflýjanlega á okkur öll. Við höfum gripið til tímabundinna lokana á þessu tímabili en líka nýtt tímann til þess að endurskoða viðbragðsáætlanir og bæta innviði svæðisins.“

Þetta segir í tilkynningu á heimasíðu Bláa lónsins. 

„Þar sem veðurskilyrði eru óhagstæð í dag, sunnudaginn 14. apríl, og hafa mögulega neikvæð áhrif á loftgæði verða allar okkar starfsstöðvar lokaðar til kl. 14. Við sendum uppfærðar upplýsingar ef aðstæður breytast. Takk fyrir skilninginn.“

Mikil brennisteinsmengun

Bláa lónið opnaði fyrir rúmri viku eftir að það hafði verið lokað í talsverðan tíma vegna gasmengunar.  Lögreglustjórinn á Suðurnesjum sagði ákvörðunin alfarið forsvarsmanna fyrirtækisins. 

Á vef Umhverfisstofnunar er hægt að fylgjast með loftgæðum og þar má sjá að mikil brennisteinsmengun mælist nú við Bláa lónið.


Tengdar fréttir

Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins

Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá því að jarðhræringarnar við Grindavík hófust fyrir fimm mánuðum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á ný vegna hættulegrar gasmengunnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×