Viðskipti innlent

Byrja að fljúga Íslendingum til Alicante og Tenerife í júlí

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Alicante á Spáni hefur löngum verið einn vinsælasti áfangastaðurinn meðal íslenskra ferðalanga.
Alicante á Spáni hefur löngum verið einn vinsælasti áfangastaðurinn meðal íslenskra ferðalanga. Vísir/getty

Beint áætlunarflug frá Íslandi til Alicante og Tenerife á Spáni hefst á ný í júlí. Ferðaskrifstofurnar Úrval útsýn og Vita bjóða upp á ferðir til umræddra áfangastaða en engar slíkar ferðir eru enn í boði hjá Heimsferðum. Þegar er uppselt í fyrstu ferð Vita til Alicante.

Spánn opnaði landamæri sín fyrir ferðamönnum innan Evrópu 21. júní síðastliðinn og þurfa þeir sem þangað koma ekki að sæta sóttkví við komuna til landsins. Þá hafa fyrirtæki víða byrjað að opna dyr sínar á ný eftir faraldur kórónuveiru. Sama þróun hefur verið uppi á teningnum í öðrum Evrópuríkjum.

Íslendingar flykkjast iðulega til Spánar yfir sumartímann, og raunar allt árið um kring, en ekki hefur verið flogið þangað síðustu mánuði vegna faraldursins. Viðskiptavinir íslensku ferðaskrifstofanna hafa þannig fjölmargir orðið af ferðum sem voru á dagskrá nú á vormánuðum.

Þegar fullt í fyrstu ferð til Alicante

En biðin er senn á enda. Ferðaskrifstofurnar Úrval útsýn og Vita munu bjóða upp á vikulegar ferðir til Alicante og Tenerife með beinu flugi Icelandair frá því um miðjan júlí. Fyrsta ferð til Tenerife hjá báðum ferðaskrifstofum verður farin 11. júlí og flogið verður til Alicante tveimur dögum síðar hjá báðum, 13. júlí. Fyrst um sinn verður flogið einu sinni í viku til hvors áfangastaðar um sig og verður sá háttur hafður á hjá bæði Úrval útsýn og Vita.

„Viðtökur hafa nú þegar verið góðar og höfum við verið að vinna hörðum höndum við að bjóða viðskiptavinum okkar tilboð í draumaferðina sína í sumar og haust,“ segir í tilkynningu Úrvals útsýnar um málið.

Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri VITA.Vísir

Þráinn Vigfússon framkvæmdastjóri Vita segir í samtali við Vísi að þegar sé orðið uppbókað í fyrstu ferð til Alicante. Margir sem hafi átt bókaðar ferðir sem aflýst var í faraldrinum hafi valið að fara í sínar ferðir nú þegar áætlunarflug hefjist á ný.

„Við höfum boðið fólki að færa sig og ef það vill ekki fara höfum við líka boðið upp á endurgreiðslu, en margir voru að reyna að komast út strax,“ segir Þráinn. Þá er áætlað að hefja frekara flug í haust, til að mynda til Kanarí í október.

Einhver bið verður þó á utanlandsferðum hjá Heimsferðum en samkvæmt heimasíðu ferðaskrifstofunnar eru engar ferðir á dagskrá hjá henni fyrr en í september. Jón Karl Ólafsson stjórnarformaður Heimsferða segir í samtali við Túrista, sem greindi frá Spánarfluginu á vef sínum í dag, að eftirspurn sé ekki mikil nú á meðan óvissa ríkir vegna faraldursins. Möguleiki sé þó á að bæta við ferðum með stuttum fyrirvara, að því gefnu að eftirspurn aukist á næstu dögum og vikum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×