Formúla 1

Heimsmeistarinn Hamilton í sjálfskipaðri sóttkví

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Lewis Hamilton hefur haldið sig frá fólki undanfarna daga.
Lewis Hamilton hefur haldið sig frá fólki undanfarna daga. Dan Istitene/Getty Images

Lewis Hamilton, ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1, er í sjálfskipaðri sóttkví eftir að hafa umgengist fólk sem greinst hefur með COVID-19. Hamilton er einkennalaus en tekur enga áhættu. Hann greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni í dag.

Áður en Hamilton, sem er sexfaldur heimsmeistari, hélt til Ástralíu þar sem fyrsta keppni ársins í Formúlu 1 átti að fara fram þá var hann á góðgerðarsamkomu í London. Þar var hann ásamt leikaranum Idris Elba sem og Sophie Trudeau [eiginkonu Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada] en þau hafa bæði greinst með kórónuveiruna.

Hamilton vill ekki taka neina óþarfa áhættu og hefur því verið í sjálfskipaðri sóttkví þó svo hann finni ekki fyrir neinum einkennum.

Sky Sports greindi frá þessu fyrr í dag.

Hamilton fór í skimun fyrir veirunni þann 4. mars en hefur ekki farið síðan „þar sem aðrir þurfa frekar á því að halda.“

Í færslunni sem Hamilton birti á Twitter tekur hann fram að hann sé hraustur, æfi tvisvar á dag og hafi talað við lækni. Þá segir hann að það sé það takmarkaður fjöldi af prófum í boði fyrir þá sem gætu verið með veiruna og því vilji hann ekki láta prófa sig af óþörfu.

Að lokum þakkar hann fyrir öll skilaboðin og minnir fólk á að þvo sér reglulega með vatni og sápu í allavega 20 sekúndur. Skilaboðin má lesa hér að neðan.


Tengdar fréttir

Mónakókappakstrinum aflýst og tveimur keppnum frestað

Formúla 1 hefur ekki farið varhluta af afleiðingum kórónuveirunnar og nú hefur verið ákveðið að taka Mónakókappaksturinn af dagskrá tímabilsins auk þess að fresta hollenska og spænska kappakstrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×