Formúla 1

Sainz á ráspól í Breska kappakstrinum

Árni Jóhansson skrifar
Carlos Sainz á fleygiferð í rigningunni
Carlos Sainz á fleygiferð í rigningunni Getty Images

Silverstone brautin var blaut þegar tímatakan fyrir Breska kappaksturinn fór fram fyrr í dag. Það hafði vissulega áhrif en það var Carlos Sainz á Ferrari bílnum sem náði ráspólnum í kappakstrinum sem fram fer á morgun.

Rigningin hafði þau áhrif meðal annars að Max Verstappen hringsneri bíl sínum á fyrsta hring í tímatöku númer þrjú í dag en hann náði þó að klára hringinn og halda áfram. Valtteri Bottas hjá Alfa Romeo og Sebastian Vettel hjá Aston Martin duttu út í fyrstu tveimur tímatökum dagsins og byrja í 12. og 18. í kappakstrinum á morgun.

Ökumenn áttu í smá vandræðum í síðustu tímatökunni en fundu taktinn þegar leið á og tímarnir urðu hraðari og hraðari eftir því sem menn náðu fleiri hringjum. Max Verstappen á Red Bull bílnum náði besta tímanum þegar þriðja tímatakan var u.þ.b. hálfnuð en Leclerc á Ferrari náði að skáka honum í nokkrar sekúndur áður en Verstappen mætti aftur til að ná besta hringnum þegar um mínúta var eftir af tímatökunni og flestir fóru á síðasta hringinn.

Úr varð að Leclerc sneri bílnum sínum og náði ekki að bæta sig en það gerði Carlo Sainz liðsfélagi Leclerc og náði í ráspólinn fyrir Breska kappaksturinn og er það í fyrsta sinn sem Spánverjinn nær í ráspól. Annar verður Max Verstappen og Charles Leclerc í því þriðja. Heimsmeistarinn Lewis Hamilton lenti í fimmta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×