Formúla 1

Risatíðindi úr F1: Hamilton sagður á leið í Ferrari

Sindri Sverrisson skrifar
Lewis Hamilton virðist eiga að taka sæti Carlos Sainz hjá Ferrari.
Lewis Hamilton virðist eiga að taka sæti Carlos Sainz hjá Ferrari. Getty/Qian Jun

Ein stærstu félagaskipti í sögu Formúlu 1 kappakstursins virðast vera í pípunum því talið er að sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton sé að ganga til liðs við Ferrari.

Á vef Motorsport.com segir að útlit sé fyrir að Hamilton verði annar af ökuþórum Ferrari frá og með næsta ári. Ekki sé ljóst hvort að samningar hafi þegar verið undirritaðir en að það gæti orðið frágengið fyrir lok þessarar viku.

BBC tekur undir þennan fréttaflutning og segir að mögulega verði tilkynnt um samning á milli Hamiltons og Ferrari í dag.

Ferrari hefur lengi haft augastað á Hamilton en hann hefur hingað til viljað halda sig við Mercedes enda talið það vænlegri kost til að fjölga heimsmeistaratitlum. Eftir tvö erfið tímabil með Mercedes er hins vegar komið annað hljóð í strokkinn.

Hamilton skrifaði í fyrra undir samning við Mercedes sem sagður var gilda árin 2024 og 2025 en nú virðist sem að seinna árið hafi verið valkvætt.

Ítalski miðillinn formu1a.uno segir að möguleikinn á að fá Hamilton sé ástæðan fyrir því hvað það hafi dregist hjá Ferrari að endursemja við Carlos Sainz, en samningur hans rennur út í lok þessa árs. Greint var frá nýjum samningi við Charles Leclerc fyrir nokkrum dögum.

Spænski miðillinn AS segir aðeins eftir að ganga frá smáatriðum en að ljóst sé að Hamilton ætli sér að reyna við áttunda heimsmeistaratitilinn sem fulltrúi Ferrari. Þá sé ljóst að hinn spænski Sainz þurfi að finna sér nýtt lið og nefnir blaðið Audi, Mercedes og Aston Martin sem bestu kosti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×