Spænski boltinn

Fréttamynd

Barcelona ekki á eftir Ferdinand

Barcelona neitaði í dag þeim orðrómi að varnarmaðurinn sterki, Rio Ferdinand, væri á leið til félagsins og sögðu sögusagnirnar vera úr lausu lofti gripnar.

Sport
Fréttamynd

Viljandi gult hjá Beckham?

Real Madrid og Atletico Madrid gerðu markalaust jafntefli í fremur bragðdaufum nágrannaslag í spænsku úrvalsdeildinni. David Beckham krækti sér í gult spjald í leiknum og það viljandi að talið er því hann verður í leikbanni í lokaumferðinni og getur því farið með enska landsliðinu til Bandaríkjanna um næstu helgi.

Sport
Fréttamynd

Beckham viðrar óánægju sína

Enski landsliðsfyrirliðinn hefur viðrað óánægju sína með að fara í gegnum annað tímabilið án bikars hjá Real Madrid. Þessi fyrrum leikmaður Manchester United hefur ekki unnið til verðlauna síðan hann flutti sig til Spánar fyrir tveimur árum.

Sport
Fréttamynd

Etoo ekki til sölu

Forseti Barcelona, Joan Laporta, sagði í dag að hann myndi aldrei selja Samuel Etoo þrátt fyrir orðróm um áhuga Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Jose Mari vill fá Abbiati

Spænski framherjinn hjá Villarreal, Jose Mari, hefur skorað á félagið að fá varamarkvörð AC Milan, Cristiano Abbiati, til liðs við félagið. Villarreal er á höttunum eftir nýjum markverði þar sem Jose Reina, núverandi markvörður þeirra, mun að öllum líkindum skrifa undir hjá Liverpool í sumar.

Sport
Fréttamynd

Van Bommel semur við Barcelona

Hollendingurinn Mark van Bommel skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við spænsku meistarana Barcelona. Bommel er 28 ára og var fyrirliði PSV Eindhoven og varð fjórum sinnum hollenskur meistari með liðinu. Hann verður 17. Hollendingurinn sem spilar með Barcelona en sá fyrsti var Johan Cruyff árið 1973.

Sport
Fréttamynd

"Zidane sá besti" segir Pele

Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Pele segir að franski landsliðsmaðurinn Zinedine Zidane sé besti knattspyrnumaður síðasta áratugar. Pele sem nú er 64 ára er staddur á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi þar sem hann er að kynna nýja heimildarmynd um feril sinn sem besti knattspyrnumaður sögunnar.

Sport
Fréttamynd

Fyrsti titlinn Barcelona í sex ár

Barcelona varð í gærkvöldi spæsnkur meiststari í knattspyrnu í 17. sinn og í fyrsta sinn í sex ár þegar liðið gerði jafntefli við Levante, 1-1. Alberto Rivera náði forystunni fyrir Levante í fyrri hálfleik en Samuel Eto'o jafnaði fyrir Barcelona í síðari hálfleik. Eitt stig dugði Börsungum til að landa fyrsta meistaratitlinum frá árinu 1999.

Sport
Fréttamynd

Osasuna í úrslit bikarkeppninnar

Osasuna komst í gærkvöld í úrslit í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Atletico Madrid í síðari leik liðanna, en Osasuna vann fyrri leikinn með einu marki gegn engu og mætir Real Betis í úrslitum.

Sport
Fréttamynd

Stutt í endalok ferils Zidanes

Knattspyrnusnillingurinn Zinedine Zidane segir að svo geti farið að hann leggi skóna á hilluna áður en samningur hans við Real Madríd rennur út árið 2007. Hann segir alveg ljóst að hann hætti knattspyrnuiðkun þegar samningurinn rennur út en svo geti farið að styttra væri í það.

Sport
Fréttamynd

Sevilla á eftir Luis Fabiano

Spænska liðið Sevilla eru komnir í kapphlaupið um brasilíska framherjann Luis Fabiano hjá Porto ef marka má fréttir frá Portúgal.

Sport
Fréttamynd

Beckham meiddur

David Beckham meiddist á æfingu og gæti misst af leik Real Madrid gegn Sevilla á laugardaginn. Hinn þrítugi enski landsliðsfyrirliði, sem hefur verið í fínu formi að undanförnu, gat ekki æft í dag né í gær.

Sport
Fréttamynd

Kvikmynd væntanleg um Real Madrid

Spænska knattspyrnustórveldið Real Madrid gefur á næstu dögum út fyrstu kvikmyndina í fullri lengd um félagið. Myndin sem ber titilinn "Real, The Movie" verður kynnt í nokkrum löndum í sumar á ferðalagi liðsins um heiminn. Myndin skiptist bæði í leikna og raunverulega kafla úr herbúðum liðsins.

Sport
Fréttamynd

Hierro hættur

Fyrrum leikmaður Real Madrid og spænska landsliðsins, Fernando Hierro, hefur tilkynnt að hann muni leggja skóna á hilluna eftir yfirstandandi tímabil.

Sport
Fréttamynd

Barca vill ekki tjá sig um Pires

Barcelona hefur neitað að tjá sig um Robert Pires og þær sögusagnir að Frakkinn sé á leiðinni til félagsins. Pires á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal og hefur verið tjáð að hann muni aðeins fá árs framlengingu þegar sá samningur rennur út.

Sport
Fréttamynd

Real burstaði Santander

Real Madríd burstaði Racing Santander, 5-0, í spænska fótboltanum í gærkvöldi og minnkaði forystu Barcelona í þrjú stig. Michael Owen skoraði fyrsta markið en Ronaldo og Raul skoruðu síðan tvö mörk hvor.

Sport
Fréttamynd

Betis - Sevilla á Sýn í kvöld

Klukkan 20 í kvöld verður leikur Betis og Sevilla í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu sýndur beint á Sýn. Liðin koma bæði frá Sevilla og berjast hart um að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð. Betis er í 7. sæti en Sevilla í 3. sæti.

Sport
Fréttamynd

Liverpool á eftir Joaquin

Liverpool er á eftir Joaquin, kantmanni Real Betis, ef marka má frétt hjá Sky fréttastofunni. Rafael Benitez er mikill aðdáandi leikmannsins og vonast til að geta sannfært hann um að hafna tilboðum frá bæði Real Madrid og Chelsea til að koma til Liverpool.

Sport
Fréttamynd

Auglýsing á búning Barcelona

Barcelona mun, í fyrsta skiptið í sögu félagsins, bera auglýsingu framan á búning sínum á næsta tímabili en félagið skrifaði í dag undir fimm ára samning við kínversku ríkisstjórnina.

Sport
Fréttamynd

Liverpool í viðræðum við Reina

Umboðsmaður Jose Reina, markvörð Villarreal í spænska boltanum, hefur staðfest að Liverpool sé í viðræðum við Villarreal um kaup á Reina. Liverpool hefur verið á eftir Reina í þó nokkurn tíma og hefur Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, látið njósnara sína fylgjast með leikmanninum að undanförnu.

Sport
Fréttamynd

Van Bommel við það að skrifa undir

Mark van Bommel hefur staðfest að hann sé við það að skrifa undir hjá einu af bestu félagi Evrópu. Barcelona eru taldir líklegastir en talið er að þeir hafi sigrað Real Madrid í kapphlaupinu um leikmanninn.

Sport
Fréttamynd

Barcelona heldur Real fjarri

Barcelona sigraði Albacete í spænsku úrvalsdeildinni í gær, 2-0, og hefur því enn á ný sex stiga forskot á Real Madrid þegar fjórar umferðir eru eftir. Samuel Eto´o og Leo Messi skoruðu mörk Börsunga.

Sport
Fréttamynd

Real sigraði Sociedad

Real Madrid sigraði Real Sociedad 2-0 á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld, en Ronaldo skoraði bæði mörk Madrídinga. Liðið er nú í öðru sæti deildarinnar með 72 stig, þremur stigum á eftir Barcelona sem mæti Albacete í dag og getur aukið forskot sitt í deildinni í sex stig með sigri.

Sport
Fréttamynd

Beckham í bakvörðinn

Knattspyrnumaðurinn David Beckham hjá Real Madrid mun leysa nýja stöðu þegar lið hans mætir Real Sociedad í spænska boltanum um helgina.

Sport
Fréttamynd

Osasuna lagði Villareal

Einn leikur var í spænsku fyrstu deildinni í knattspyrnu í gær. Osasuna vann Villareal með þremur mörkum gegn tveimur. Villareal er í 5. sæti í deildinni með 52 stig en stigin sem liðið tapaði í gær eru dýrmæt í baráttunni um Meistaradeildarsæti. Osasuna er í 13. sæti með 43 stig.

Sport
Fréttamynd

Beckham kærir barnapíu

Abbie Gibson, fyrrum barnfóstra David og Victoriu Beckham, á yfir höfði sér málsókn vegna ummæla í viðtali við breskt slúðurblað.

Sport
Fréttamynd

Real saxaði á Barcelona

Real Madrid sigraði Villareal með tveimur mörkum gegn einu í spænsku 1. deildinni í gærkvöldi og minnkaði forystu Barcelona í þrjú stig. Barcelona mætir Malaga á La Rosaleda vellinum í Malaga í dag. Leikurinn hefst klukkan 17 og verður sýndur beint á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Real getur minnkað muninn í 3 stig

Real Madríd mætir Villareal í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20 og verður sýndur beint á Sýn. Real getur minnkað forystu Barcelona í þrjú stig en Barcelona mætir Malaga á morgun.

Sport